Jean Monnet Chair
Staða Íslands í öryggismálum norðurslóða og Evrópu
Háskólinn á Bifröst hefur hlotið Jean Monnet Chair styrk með áherslu á stöðu Íslands í öryggismálum norðurslóða og Evrópu. Verkefnið heitir Iceland’s strategic role in Arctic and European security á ensku, (skammstafað ISARCEUR) og byggir á þeirri sérstöðu Íslands að vera utan Evrópusambandsins en samt djúpt fléttað inn í evrópskt samstarf í gegnum aðild að EES-samningnum, Schengen-samstarfinu og NATO.
Í ljósi hins breytta öryggisumhverfis norðurslóða, meðal annars vegna stríðsins í Úkraínu, aukinnar samkeppni stórvelda um áhrif á norðurslóðum, fjölþáttaógna og þróunar í orkuöryggi og loftslagsmálum, hefur mikilvægi Íslands fyrir öryggi álfunnar aukist verulega.
Verkefnið miðar að því að efla og dýpka fræðilegt og stefnumótandi samtal um stöðu Íslands í evrópskum öryggismálum og þróun norðurslóðastefnu ESB. Með nýjum námskeiðum, rannsóknum, og opinberri umræðu um evrópska samvinnu og öryggisuppbyggingu, verður leitast við í gegnum þetta verkefni að byggja brú milli fræða, stefnumótunar og samfélagslegrar umræðu. Verkefnið er leitt af dr. Magnúsi Árna Skjöld Magnússyni, prófessor við Háskólann á Bifröst og fyrrverandi rektor, en hann hefur sinnt kennslu og rannsóknum á sviði Evrópufræða og alþjóðamála um árabil.
Helstu áherslur verkefnisins eru:
- Að þróa ný námskeið í grunnnámi við Háskólann á Bifröst með áherslu á öryggis- og varnarmál Evrópu, norðurslóða og hlutverk Íslands í því samhengi.
- Að efla rannsóknir á evrópskri öryggisstefnu og nýjum öryggisógnum á norðurslóðum og í íslensku samhengi.
- Að skapa vettvang fyrir stefnumótandi umræðu milli fræðasamfélags, opinberra aðila, fjölmiðla og almennings í tengslum við framtíðarsamskipti Íslands og bandamanna þess í Evrópu og annarsstaðar.
- Að styrkja tengsl við alþjóðlega samstarfsaðila, m.a. sendiráð, rannsóknarstofnanir, Jean Monnet netverk og evrópska háskóla og rannsakendur sem vinna að skyldum málefnum.
Jean Monnet Chair verkefnið er styrkt af Erasmus+ áætlun Evrópusambandsins og mun standa frá 2025 til 2028. Það styður við markmið Evrópusambandsins um að efla þekkingu og umræðu um Evrópusamrunann og evrópsk málefni á háskólastigi sem og utan háskólanna.

|






