Sala og samningatækni

Hvað greinir á milli sölusamtals sem skilar árangri og samtals sem rennur út í sandinn? Hvernig byggjum við upp traust og náum betri árangri í samningaviðræðum?

Góð sala og árangursríkar samningaviðræður byggjast sjaldnast á sannfæringarkrafti einum saman. Þær krefjast undirbúnings, skilnings á þörfum viðskiptavina, virkrar hlustunar og hæfni til að finna lausnir sem gagnast báðum aðilum.

Á þessari vinnustofu fá þátttakendur hagnýta innsýn í helstu þætti sölu, þjónustu og samningatækni. Áhersla er lögð á að tengja fræðsluna við raunverulegar aðstæður með verkefnavinnu og æfingum sem nýtast í daglegum störfum.

Fyrir hverja?

Vinnustofan er ætluð sölufólki, sölustjórum, þjónustufulltrúum og stjórnendum sem vilja efla færni sína í sölu og samningaviðræðum.

Ekki er gerð krafa um forþekkingu.

Markmið og ávinningur

Þátttakendur öðlast þekkingu og færni til að:

  • Undirbúa samningaviðræður og þekkja ólíka samningsstíla.

  • Byggja upp traust og finna lausnir sem gagnast báðum aðilum.

  • Greina þarfir viðskiptavina og beita virkri hlustun.

  • Þekkja muninn á aðferðum í B2B og B2C sölu.

  • Setja markmið, fylgja málum eftir og forðast algeng mistök í söluferlinu.

Í vinnustofunni æfa þátttakendur sig með hlutverkaleikjum og geta unnið með raunverulegar aðstæður úr eigin starfsemi. Þannig tengist fræðslan beint þeim verkefnum og áskorunum sem þeir mæta í daglegum störfum.

Helstu viðfangsefni

Samningatækni

  • Undirbúningur: Hvernig góður undirbúningur leggur grunn að árangursríkum samningaviðræðum.

  • Samningsstílar: Ólíkar nálganir í samningaviðræðum og hvernig bregðast má við þeim.

  • Traust og sameiginlegar lausnir: Leiðir til að byggja upp traust og ná niðurstöðu sem gagnast báðum aðilum.

Sala

  • Þarfagreining, hlustun og þjónusta: Að skilja þarfir viðskiptavina og líta á góða þjónustu sem lykil að árangri.

  • B2B og B2C sala: Ólíkar söluaðferðir eftir því hver viðskiptavinurinn er.

  • Söluferlið: Hlutverk sölustjóra, markmiðasetning, eftirfylgni og algeng mistök í söluferlinu.

Fyrirkomulag

Vinnustofa (3 klukkustundir): Hagnýt fræðsla og verklegar æfingar þar sem þátttakendur þjálfa færni sína í sölu og samningaviðræðum, meðal annars með hlutverkaleikjum í sölusamtölum og samningaviðræðum.

Sérsniðið að þörfum vinnustaðarins

Fræðslan er aðlöguð að þörfum og markmiðum hvers fyrirtækis eða stofnunar.

Áður en vinnustofan fer fram er rætt við fulltrúa vinnustaðarins um áherslur og viðfangsefni. Hægt er að vinna með raunveruleg söluferli og samningsaðstæður úr starfsemi fyrirtækisins og leggja sérstaka áherslu á tiltekna þætti, svo sem samningatækni eða sölustjórnun.

Einnig er hægt að lengja vinnustofuna eða bæta við eftirfylgni eftir þörfum.

Kennari

Agnes Gunnarsdóttir er stundakennari við viðskiptadeild Háskólans á Bifröst og hefur kennt þar frá árinu 2013, meðal annars rekstrar- og sölustjórnun.

Hún hefur víðtæka stjórnunarreynslu úr íslensku atvinnulífi og hefur meðal annars verið framkvæmdastjóri FlyOver Iceland og Perlu norðursins (Perlan Museum) auk þess að hafa stýrt sölu- og markaðssviði Íslenska gámafélagsins.

Agnes lauk meistaragráðu í stjórnun og markaðsfræði frá Háskólanum á Bifröst. Í kennslu sinni leggur hún áherslu á hagnýta nálgun, stefnumótun og hvernig nýta má fræðileg verkfæri í daglegum rekstri.

Hagnýtar upplýsingar

  • Tímalengd: 3 klukkustundir.

  • Staðsetning: Á starfsstöð fyrirtækisins, á netinu eða samkvæmt óskum fyrirtækisins.

  • Fjöldi þátttakenda: Fjöldi þátttakenda er aðlagaður að þörfum vinnustaðarins.

  • Forþekking: Ekki krafist.

  • Fyrirkomulag: Sérpöntun fyrir fyrirtæki og stofnanir.

Pöntun og nánari upplýsingar

Viltu efla sölufærni starfsfólks og styrkja árangur í samningaviðræðum?

Hafðu samband við Endurmenntun Háskólans á Bifröst og fáðu fræðslu sem er sniðin að þörfum þíns fyrirtækis eða stofnunar.

Álfheiður hjá Endurmenntun Háskólans á Bifröst veitir nánari upplýsingar og tekur við fyrirspurnum og pöntunum á netfanginu endurmenntun [hjá] bifrost.is.