Gestanám

Nemendum við Háskólann á Bifröst býðst að gerast gestanemendur og taka námskeið við aðra háskóla og auka þannig aðgang að fjölbreyttum námskeiðum.

Háskólarnir eru:


Merki Háskólans á Akureyri
Merki Háskóla Íslands

Merki Landbúnaðarháskóla Íslands
Merki Listaháskóla Íslands
  • Um gestanám
    • Gestanám er skilgreint sem nám sem stundað er utan heimaskóla.
      Heimaskóli: Háskólinn (A) þar sem nemandi er skráður, þar sem hann greiðir skrásetningargjald og þar sem hann hyggst brautskrást.
    • Gestanemandi: er nemandi sem skráðu er við háskóla A en tekur einstök námskeið við háskóla B er ,,gestanemandi“ við háskóla B.
    • Móttökuskóli: Háskólinn (B) þar sem nemandinn tekur einstök námskeið, gagnvart kröfum til prófagráðu við háskóla A.
  • Inntökuskilyrði og kröfur um viðveru
    • Gestanemendur þurfa að uppfylla almenn skilyrði um inntöku í báða háskólana, sérskilyrði viðkomandi deildar (ef við á) og skilyrði um undanfara einstakra námskeiða. Ef háskólarnir þurfa að beita aðgangstakmörkunum í einstaka námskeið geta nemendur einnig þurft að uppfylla viðbótarkröfur. Almennt er miðað við að bakklárnemendur hafi lokið einu ári við heimaskólann áður en hann getur gerst gestanemandi eða lokið að lágmarki 60 ECTS einingum.
    • Athugið að allt námsframboð við Háskólann á Bifröst er í fjarnámi en nemendur þurfa að kynna sér kennslufyrirkomulag námskeiða við gestaskóla þar sem bæði er um að ræða stað- og fjarnámslausnir. Einnig þurfa nemendur að hafa í huga að í vissum námskeiðum þarf að uppfylla kröfur um viðveru, sé það tekið fram í kennsluáætlun námskeiðsins.
    • Séu fjöldatakmarkanir í námskeið ganga heimanemendur fyrir og gestanemandi getur fengið synjun á að sitja námskeiðið.
    • Móttökuskólar innheimta ekki skrásetningagjöld af gestanemendum enda borgi þeir skrásetningargjöld í sínum heimaskóla.
  • Hvernig á að sækja um?

    Umsóknarfrestur vegna gestanáms við Háskólann á Bifröst fyrir haustönn er 10. ágúst og vorönn 15. desember.

    • Nemandi sem óskar að verða gestanemandi við annan háskóla þarf að leggja fram formlega umsókn um gestanám hjá sínum heimaskóla, í síðasta lagi fyrir 1. júní vegna haustmisseris og fyrir 10. desember vegna vormisseris.
    • Gæta þarf að því að prófatímabil heimaskóla og móttökuskóla geta skarast, þ.e.a.s. próf í báðum skólum gætu mögulega farið fram á sama tíma
    • Brautskráningar skólanna eru á mismunandi tíma og þarf nemandi því að gæta sérstaklega að því að skila námsferli sínum úr gestaskóla á tilsettum tíma fyrir brautskráningu ef hann tekur gestanámskeið á síðasta misseri sínu.

Nemendur við Háskólann á Bifröst sækja um gestanám í þjónustugátt skólans.