OpenEU
Háskólasamstarf sem stuðlar að aðgengilegri, hágæða menntun um alla Evrópu
Háskólinn á Bifröst er aðili að OpenEU-háskólasamstarfinu, öflugu samstarfi 27 evrópskum fræðastofnunum og öðrum tengdum samtökum sem vinna að því að byggja upp samevrópskan opinn háskóla. Með stuðningi Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins leitast OpenEU við að styrkja stafrænar, umhverfislegar og samfélagslegar víddir Evrópska háskólasvæðisins (EHEA), og bjóða upp á aðgengilegt nám af háum gæðum og tækifæri til símenntunar fyrir alla.
Markmið bandalagsins er að takast á við nokkrar af brýnustu áskorunum samtímans, þar á meðal loftslagsvá, stafræna umbreytingu og ógnir við lýðræði.







