Samskipti og tjáning á vinnustöðum
Flest þekkjum við hvernig einn misskilningur eða orðrómur getur haft áhrif á andrúmsloftið á heilum vinnustað. En hvað einkennir góð samskipti og hvernig getum við stuðlað að betri samskiptum í daglegu starfi?
Félagsleg samskipti eru stór hluti af vellíðan í starfi. Þau hafa áhrif á samstarf, starfsanda og hvernig við skiljum hvert annað.
Á þessu netnámskeiði er fjallað um ólíka þætti samskipta á vinnustöðum, allt frá skilvirkum samskiptum og líkamstjáningu til þess hvernig slúður virkar og hvernig við getum skilið ólíka einstaklinga og tekið tillit til þeirra.
Fyrir hverja?
Námskeiðið er ætlað öllu starfsfólki og hentar vinnustöðum sem vilja efla skilning á samskiptum og samstarfi.
Þar sem námskeiðið fer fram á netinu og þátttakendur geta hlustað á fyrirlestra þegar þeim hentar, er það sérstaklega hentugt fyrir vinnustaði með vaktavinnu eða starfsfólk á mörgum starfsstöðvum.
Ekki er gerð krafa um forþekkingu.
Markmið og ávinningur
Þátttakendur:
- Fá innsýn í ólíka þætti samskipta á vinnustöðum.
- Kynnast einkennum skilvirkra samskipta og hlutverki líkamstjáningar.
- Öðlast skilning á því hvernig slúður virkar.
- Læra að skilja ólíka einstaklinga og taka tillit til þeirra.
Þegar allt starfsfólk tekur þátt fær vinnustaðurinn sameiginlegan grunn til að ræða samskipti og samstarf og efla gagnkvæman skilning.
Helstu viðfangsefni
- Samskipti á vinnustöðum: Helstu þættir samskipta og tengsl þeirra við vellíðan.
- Skilvirk samskipti: Hvað einkennir samskipti sem skila árangri?
- Líkamstjáning: Hvað segjum við án orða?
- Slúður: Hvernig það virkar og hvaða hlutverki það gegnir á vinnustöðum.
- Ólíkir einstaklingar: Að skilja ólík sjónarmið og taka tillit til annarra.
Fyrirkomulag
Námskeiðið fer alfarið fram á netinu og er skipulagt þannig að þátttakendur geta að mestu stundað námið á eigin hraða.
- Uppteknir fyrirlestrar í Canvas: Hver fyrirlestur er 30–60 mínútur og þátttakendur hlusta þegar þeim hentar.
- Ítarefni: Kennari bendir á viðbótarefni í Canvas fyrir þá sem vilja kynna sér viðfangsefnin nánar.
- Opinn umræðufundur á Teams (60 mínútur): Í lok námskeiðsins gefst þátttakendum tækifæri til að ræða einstök atriði nánar við kennara. Tímasetning er ákveðin í samkomulagi og fundurinn er opinn þátttakendum frá fleiri vinnustöðum.
Kennari
Dr. Gréta Bergrún Jóhannesdóttir er sérfræðingur hjá Rannsóknasetri byggða- og sveitarstjórnarmála við Háskólann á Bifröst og formaður stjórnar Matvælasjóðs.
Hún starfaði áður um árabil hjá Þekkingarneti Þingeyinga við byggðarannsóknir og nýsköpun og kenndi félagsvísindi við Háskólann á Akureyri.
Gréta Bergrún lauk doktorsprófi í félagsfræði frá Háskólanum á Akureyri, MA-gráðu í kynjafræði frá Háskólanum í Lundi og BA-gráðu í fjölmiðlafræði.
Hún er þekkt sem „Doktor slúður“ og heldur líflega fyrirlestra um félagslegt taumhald, hópvirkni og valdatengsl. Í kennslu sinni tengir hún saman félagsfræðilega þekkingu og hagnýt samskipti á vinnustöðum.
Hagnýtar upplýsingar
- Tímalengd: 5 klukkustundir alls.
- Kennsluform: Á netinu (Canvas og Teams).
- Fjöldi þátttakenda: Samkvæmt þörfum og samkomulagi.
- Forþekking: Ekki krafist.
- Fyrirkomulag: Sérpöntun.
Pöntun og nánari upplýsingar
Viltu efla skilning á samskiptum og skapa sameiginlegan umræðugrundvöll fyrir starfsfólkið?
Álfheiður hjá Endurmenntun Háskólans á Bifröst veitir nánari upplýsingar og tekur við fyrirspurnum og pöntunum á netfanginu endurmenntun [hjá] bifrost.is.