Áfallastjórnun

Áfallastjórnun

Í námskeiðinu verður fjallað um skilgreiningu og  mismunandi eðli áfalla og hvað felst í áfallastjórnun. Athygli beinist að þeim sem taka ákvarðanir og spurt er hvers vegna og hvernig þeir/þær velja eina leið framar annarri í viðbrögðum vegna áfalla Innan skipulagsheilda eru aðilar í þeirri aðstöðu – nái þeir samkomulagi- að geta ráðstafað auði hennar og völdum þannig að aðrir einstaklingar, hópar eða stofnanir ná ekki að breyta þeirra ákvörðun. Rýnt verður í  þrjár gerðir áfallastjórnenda sem ákvarðanatökulíkön sýna að eru ríkjandi í viðbrögðum, þ.e. ríkjandi leiðtogar, stakir hópar eða bandalag hópa.  Áhersla er lögð á að skilja lykilþætti sem hafa áhrif á áfallastjórnendur. Slíkir þættir snúa t.d. að því hvernig stjórnendur skynja og skilgreina áföll, hvernig þeir mæta átökum og/eða ná samvinnu með öðrum og hvernig þeir miðla upplýsingum og læra af reynslunni. Eins er horft til þess hvernig ríkjandi kúltúr og siðferðigildi hafa áhrif á hegðun stjórnenda í viðbrögðum vegna áfalla. Í námskeiðinu munu nemendur kynnast mismunandi afstöðu fræðisviða gagnvart áfallastjórnun, eins og á sviði alþjóðasamskipta, opinberrar stjórnsýslu og almannatengsla. Nemendur munu vinna að greiningu á áföllum að þeirra eigin vali.

Sjá nánar í kennsluskrá 

Fyrir hverja, þátttökugjald, forkröfur og einingar

Námskeiðið er fyrir þá sem vilja kynna sér hvað felst í áfallastjórnun.

Þátttakendur þurfa að hafa lokið grunnnámi á háskólastigi.

Þátttökugjald er 219.000 kr

Námskeiðið veitir 6 ECTS einingar á framhaldsstigi.

Fyrirkomulag

Námskeiðið er kennt í lotubundnu fjarnámi. Námskeiðið stendur yfir í fimmtán vikur og nemendur mæta í eina vinnustofur á Bifröst og eina vinnustofu á Teams. Kennsla hefst 21. ágúst 2023 og stendur til 24. nóvember 2023. Um fjögurra stunda vinnustofa á Bifröst verður á tímabilinu 14.-17. September og 9.-12. nóvember, en nánari tímasetning er kynnt í námskeiðinu. Námsmat fer fram dagana 27. nóvember – 1. desember.  

Kennari

Kennari námskeiðsins er dr. Ásthildur Elva Bernharðsdóttir, dósent við Háskólann á Bifröst.

Styrkir

Mörg stéttarfélög bjóða upp á styrki vegna námskeiða. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi.

Umsóknarfrestur og skráning

Umsóknarfrestur er til 8. ágúst 2023.

Vinsamlegast láttu fylgja gögn í viðhengi sem sýna að þú uppfyllir aðgangsviðmið. 

Allar nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun@bifrost.is.

Hér má sjá nánari upplýsingar um Endurmenntun til eininga við Háskólann á Bifröst

 

Skráning


Skrá mig

Smelltu á hnappinn til að sæka um námskeið í Endurmenntun Háskólans á Bifröst.

 

Svona skráir þú þig á námskeið:

  1. Fylla þarf út umsóknareyðublað í umsóknargáttinni.
  2. Ef þú skráir þig í námskeið með aðgangsviðmið, þarftu að bíða eftir að samþykki berist með tölvupósti.
  3. Til að ljúka við skráningu þarf að ganga frá greiðslu í umsóknargátt og sækja um notendanafn fyrir innra kennslukerfi Háskólans á Bifröst, Uglu https://ugla.bifrost.is. Þar birtast allar upplýsingar um námskeiðið.

Nánari upplýsingar eru veittar á endurmenntun@bifrost.is eða í síma 433 3000.