Leiðtoganám í hafgæslu - grunndiplóma



Grunndiplóma í leiðtoganámi í hafgæslu er nýtt og sérhæft nám sem svarar sívaxandi þörfum atvinnulífsins fyrir vel menntaða stjórnendur á sviði hafs, öryggis og siglinga. Þróun námsins er samstarfsverkefni Landhelgisgæslu Íslands, Háskólans á Bifröst og Tækniskólans og leggur það ríka áherslu á leiðtogafræði, hafsvæðastjórnun og leit og björgun á sjó.

Námið er 60 ECTS eininga grunnnám.  Meginþættir námsins byggja á leiðtogafræðum, stjórnun, siglingafræði, lögfræði og öryggismálum, með sérstakri áherslu á raunhæf verkefni og starfstengt nám í samstarfi við Landhelgisgæsluna. Námið er kennt yfir fjórar annir og miðar að því að styrkja faggrunn nemenda og skapa tækifæri til frekari starfsþróunar.

Sigríður Ragna Sverrisdóttir, hjá sjómælinga- og siglingaöryggisdeild Landhelgisgæslu Íslands lauk sambærilegu námi við Háskólann í Tromsø í Noregi og hafði þetta um námið að segja:  

"Ég mæli hiklaust með námi sem þessu, fyrir framsækið fólk í ólgusjó nútímans. Námið mitt í Ocean Leadership, við Háskólann í Tromsø í Noregi, víkkaði til muna skilning minn,  þekkingu og lausnamiðaða hugsun um málefni hafsins og þverfaglega sýn. Námið hefur eflt mig í fjölþættum störfum mínum hjá Landhelgisgæslu Íslands og styrkt sýn mína á raunhæfar leiðir að markmiðum í málefnum hafsins."

Fyrir hverja er námið?

Námið er sérstaklega hugsað fyrir einstaklinga sem hafa lokið D-réttindum skipstjórnar, en hentar einnig breiðari hópi sem vill efla þekkingu sína á haf- og öryggistengdum málefnum. Hafi nemendur einnig lokið námskeiði í siglingafræði hjá Tækniskólanum og fullnægjandi siglingatíma veitir námið réttindi til að sækja um skipherraréttindi. 

 

Umsóknarfrestur er til 1. júlí. 

 

Fagstjóri námsins er Haukur Logi Karlsson.



  • Lærðu heima

    Háskólinn á Bifröst er í fararbroddi í fjarnámi, sem gerir þér kleift að vera í námi við HB á þínum forsendum. Áhersla er lögð á einstaklingsbundna nálgun og námsumhverfi er stafrænt og sveigjanlegt. Stafrænt fjarnám er þannig frábær valkostur fyrir fólk sem hentar að vera í sveigjanlegu háskólanámi, vegna vinnu með námi eða af einhverjum allt öðrum ástæðum. Nánar um námið við Háskólann á Bifröst

  • Fyrirkomulag námsins

    Allt nám við Háskólann á Bifröst er kennt í fjarnámi ásamt staðlotum í samræmi við dagskrá skólaársins. Mögulegt er að ljúka námsleiðinni alfarið í fjarnámi. Það þýðir að námskeið eru skipulögð þannig að námið fer fram á netinu og gert er ráð fyrir rauntímaþátttöku nemenda á netfundum og /eða í staðlotum.  Hverri önn við Háskólann á Bifröst er skipt upp í tvær 7 vikna lotur og er ein staðlota í hverri lotu.