Rannsóknasetur

Við Háskólann á Bifröst starfa fjögur sjálfstæð rannsóknasetur sem sinna rannsóknum og þekkingarmiðlun á sérhæfðum fræðasviðum. Rannsóknasetrin stuðla að samstarfi fræðafólks innan og utan háskólans og efla tengsl rannsókna við samfélag og atvinnulíf.

Evrópufræðasetur

Evrópufræðasetur sinnir rannsóknum á Evrópumálum, með sérstaka áherslu á Evrópuvæðingu og stöðu Íslands í evrópsku samstarfi. Rannsóknasetrið tekur þátt í innlendum og alþjóðlegum rannsóknarverkefnum og tengir rannsóknir við kennslu við Háskólann á Bifröst.

Rannsóknasetur í byggða- og sveitarstjórnarmálum

Rannsóknasetrið eflir rannsóknir á byggða- og sveitarstjórnarmálum með það að markmiði að styðja við jákvæða byggðaþróun, öflugt sveitarstjórnarstig og upplýsta stefnumótun. Rannsóknir setursins ná meðal annars til búsetuskilyrða, byggðaþróunar, sveitarstjórnarmála og vinnu- og fasteignamarkaðar.

Rannsóknasetur skapandi greina

Rannsóknasetrið eflir rannsóknir og þekkingu á menningu og skapandi greinum, með áherslu á samfélagsleg og efnahagsleg áhrif þeirra. Setrið stuðlar jafnframt að samstarfi, gagnaöflun og miðlun þekkingar á sviðinu.

Rannsóknasetur verslunarinnar

Rannsóknasetur verslunarinnar sinnir rannsóknum og miðlun upplýsinga um þróun og breytingar í verslun. Rannsóknasetrið leggur áherslu á hagnýtar rannsóknir og gögn sem nýtast atvinnulífi, stjórnvöldum og öðrum sem koma að verslun og þjónustu.