Vörumerki og markaðssamskipti
Veit starfsfólkið ykkar fyrir hvað vörumerkið stendur? Eru allir að segja sömu söguna?
Sterkt vörumerki byggist á skýrri sýn, sameiginlegum skilningi og samræmdum skilaboðum. En hvernig tryggjum við að stjórnendur, markaðsfólk og annað starfsfólk miðli sömu skilaboðum til viðskiptavina og samstarfsaðila?
Í þessari vinnustofu er fjallað um hvernig markviss markaðssamskipti stuðla að uppbyggingu og styrkingu vörumerkja. Áhersla er lögð á að tengja saman stefnu, gildi, markhópa og skilaboð þannig að vörumerkið birtist á skýran og samræmdan hátt í öllum samskiptum.
Fyrir hverja?
Vinnustofan og fyrirlesturinn er ætluð stjórnendum, markaðsfólki og öðru starfsfólki sem vill öðlast betri skilning á vörumerkinu og eigin hlutverki í að styrkja það.
Ekki er gerð krafa um forþekkingu á markaðsmálum.
Markmið og ávinningur
Þátttakendur öðlast þekkingu og verkfæri til að:
-
Tengja saman framtíðarsýn, gildi, markhópagreiningu, staðfærslu og kjarnaskilaboð.
-
Móta skýr skilaboð og velja samskiptaleiðir sem henta ólíkum markhópum.
-
Skilja hvernig starfsfólk og samstarfsaðilar geta styrkt vörumerkið með samræmdum samskiptum.
Í vinnustofunni vinna þátttakendur með vörumerki eigin fyrirtækis og tengja þannig fræðsluna beint við starfsemina. Sameiginleg þátttaka stjórnenda, markaðsfólks og annars starfsfólks getur jafnframt stuðlað að skýrari sýn og sameiginlegum skilningi á því fyrir hvað vörumerkið stendur.
Helstu viðfangsefni
-
Framtíðarsýn og gildi: Grunnurinn að sterku vörumerki.
-
Markhópagreining og staðfærsla: Hverjir eru markhóparnir og hvernig aðgreinir vörumerkið sig?
-
Kjarnaskilaboð og samskiptaleiðir: Hvernig mótum við skýr skilaboð og veljum réttu leiðirnar til að ná til ólíkra markhópa?
-
B2B og B2C markaðssamskipti: Mismunandi nálganir í samskiptum við fyrirtæki og einstaklinga.
-
Stafrænir miðlar og almannatengsl: Hvernig styðja ólíkar samskiptaleiðir við vörumerkið?
-
Starfsfólk og samstarfsaðilar sem sendiherrar vörumerkisins: Hvernig geta þau styrkt ímynd þess og miðlað sameiginlegum skilaboðum?
Fyrirkomulag
Fræðslan er í boði í tveimur útfærslum:
-
Fyrirlestur (90 mínútur): Hagnýt yfirsýn yfir helstu þætti vörumerkjauppbyggingar og markaðssamskipta.
-
Vinnustofa (3 klukkustundir): Verkefnavinna þar sem þátttakendur vinna með vörumerki eigin fyrirtækis og skoða hvernig styrkja megi skilaboð og samræmi í markaðssamskiptum.
Í báðum útfærslum er stuðst við hagnýt líkön og verkfæri sem þátttakendur geta nýtt í starfi.
Sérsniðið að þörfum vinnustaðarins
Fræðslan er aðlöguð að þörfum og markmiðum hvers fyrirtækis eða stofnunar.
Áður en fyrirlestur eða vinnustofa fer fram er rætt við fulltrúa vinnustaðarins um áherslur og viðfangsefni. Hægt er að leggja sérstaka áherslu á tiltekna þætti, svo sem B2B-markaðssamskipti, kjarnaskilaboð eða hlutverk starfsfólks sem sendiherra vörumerkisins.
Einnig er hægt að lengja vinnustofuna eða bæta við eftirfylgni eftir þörfum.
Kennari
Agnes Gunnarsdóttir er stundakennari við viðskiptadeild Háskólans á Bifröst og hefur kennt þar frá árinu 2013, meðal annars rekstrar- og sölustjórnun.
Hún hefur víðtæka stjórnunarreynslu úr íslensku atvinnulífi og hefur meðal annars verið framkvæmdastjóri FlyOver Iceland og Perlu norðursins (Perlan Museum) auk þess að hafa stýrt sölu- og markaðssviði Íslenska gámafélagsins.
Agnes lauk meistaragráðu í stjórnun og markaðsfræði frá Háskólanum á Bifröst. Í kennslu sinni leggur hún áherslu á hagnýta nálgun, stefnumótun og hvernig nýta má fræðileg verkfæri í daglegum rekstri.
Hagnýtar upplýsingar
-
Tímalengd: Val um fyrirlestur 90 mínútur eða vinnustofu 3 klukkustundir.
-
Staðsetning: Á starfsstöð fyrirtækisins, á netinu eða samkvæmt samkomulagi.
-
Fjöldi þátttakenda: Samkvæmt þörfum og samkomulagi.
-
Forþekking: Ekki krafist.
-
Fyrirkomulag: Sérpöntun fyrir fyrirtæki og stofnanir.
Pöntun og nánari upplýsingar
Viltu efla sameiginlegan skilning á vörumerkinu og styrkja markaðssamskipti á þínum vinnustað?
Hafðu samband við Endurmenntun Háskólans á Bifröst og fáðu fræðslu sem er sniðin að þörfum þíns fyrirtækis eða stofnunar.
Álfheiður veitir nánari upplýsingar og tekur við fyrirspurnum og pöntunum á netfanginu endurmenntun [hjá] bifrost.is.
