Þjónandi forysta
Hvað þarf til að skapa vinnustað þar sem fólk treystir hvert öðru, tekur ábyrgð og fær svigrúm til að vaxa og nýta styrkleika sína?
Þjónandi forysta byggist á trausti, virkri hlustun og sameiginlegri sýn. Hugmyndafræðin leggur áherslu á að efla samstarf, ábyrgð og starfsumhverfi þar sem einstaklingar fá tækifæri til að vaxa og nýta hæfileika sína.
Á þessari vinnustofu kynnast þátttakendur helstu þáttum þjónandi forystu og hvernig nýta má hugmyndafræðina í daglegu starfi. Áhersla er lögð á hagnýta nálgun og verkefni sem tengjast raunverulegum aðstæðum á vinnustaðnum.
Fyrir hverja?
Vinnustofan er ætluð heilum starfsmannahópum og hentar jafnt stjórnendum sem öðru starfsfólki sem vill efla samskipti, traust og samvinnu á vinnustaðnum.
Ekki er gerð krafa um fyrri reynslu eða þekkingu á þjónandi forystu.
Markmið og ávinningur
Að vinnustofunni lokinni eiga þátttakendur að:
-
Þekkja helstu þætti þjónandi forystu og hugmyndafræðina að baki henni.
-
Skilja hvernig virk hlustun og traust hafa áhrif á samskipti og samvinnu.
-
Hafa unnið með raunhæf dæmi og fengið hagnýt verkfæri sem nýtast beint í starfi.
Fyrir vinnustaðinn getur þjónandi forysta stuðlað að aukinni starfsánægju, betri samvinnu og sterkari vinnustaðamenningu. Þegar heill starfshópur tekur þátt saman skapast sameiginlegur grunnur til að ræða samskipti, ábyrgð og samstarf.
Helstu viðfangsefni
-
Hugmyndafræði þjónandi forystu: Grunnþættir hennar, eins og Robert K. Greenleaf setti þá fram, og hvernig þeir birtast í daglegu starfi.
-
Sjálfsþekking og ábyrgð leiðtogans: Hlutverk þess sem leiðir og mikilvægi sjálfsþekkingar.
-
Virk hlustun og samskipti: Hvernig hlustun og opin samskipti styrkja samstarf.
-
Uppbygging trausts: Hvernig traust myndast og hvernig viðhalda má því.
-
Teymisvinna og sameiginleg sýn: Mikilvægi þess að hópurinn vinni að sameiginlegum markmiðum.
-
Svigrúm til vaxtar: Hvernig skapa má umhverfi þar sem fólk tekur ábyrgð og nýtir styrkleika sína.
Fyrirkomulag
Vinnustofa (3 klukkustundir): Hagnýt fræðsla þar sem þátttakendur vinna með raunhæf dæmi og fá verkfæri sem þeir geta nýtt strax í eigin starfi.
Sérsniðið að þörfum vinnustaðarins
Vinnustofan er aðlöguð að þörfum og áherslum hvers fyrirtækis eða stofnunar.
Áður en vinnustofan fer fram er rætt við fulltrúa vinnustaðarins til að greina þarfir og áherslur hópsins.
Einnig er hægt að lengja vinnustofuna eða bæta við eftirfylgni eftir þörfum.
Kennari
Dr. Skúli S. Ólafsson er sóknarprestur í Neskirkju og stundakennari við Háskólann á Bifröst, þar sem hann kennir meðal annars þjónandi forystu.
Hann lauk doktorsprófi í kirkjusögu og MBA-gráðu frá Háskóla Íslands. Hann hefur víðtæka reynslu af stjórnun, mannauðsmálum og samfélagsstarfi, bæði hér á landi og erlendis.
Í kennslu sinni tvinnar Skúli saman fræðilega þekkingu og hagnýta reynslu af því að leiða hópa á lýðræðislegan og uppbyggilegan hátt.
Hagnýtar upplýsingar
-
Tímalengd: 3 klukkustundir.
-
Staðsetning: Á starfsstöð fyrirtækisins, á netinu eða samkvæmt óskum fyrirtækisins.
-
Fjöldi þátttakenda: Samkvæmt þörfum og samkomulagi.
-
Forþekking: Ekki krafist.
-
Fyrirkomulag: Sérpöntun fyrir fyrirtæki og stofnanir.
Pöntun og nánari upplýsingar
Viltu efla traust, samvinnu og sameiginlega sýn á þínum vinnustað?
Hafðu samband við Endurmenntun Háskólans á Bifröst og fáðu fræðslu sem er sniðin að þörfum þíns fyrirtækis eða stofnunar.
Álfheiður hjá Endurmenntun Háskólans á Bifröst veitir nánari upplýsingar og tekur við fyrirspurnum og pöntunum á netfanginu endurmenntun [hjá] bifrost.is.
