CRANET
Alþjóðlegt rannsóknarsamstarf á sviði mannauðsstjórnunar
CRANET (Cranfield Network on International Human Resource Management) er alþjóðlegt rannsóknarsamstarf á sviði mannauðsstjórnunar. Alls standa 50 háskólar frá jafnmörgum löndum að verkefninu og hefur það um áratugaskeið sameinað fræðimenn og háskóla í samanburðarrannsóknum á mannauðsmálum.
Markmið verkefnisins er að afla sambærilegra gagna um mannauðsstjórnun í ólíkum löndum og skapa þannig traustan grunn til samanburðar, þekkingaruppbyggingar og frekari rannsókna. Með samhæfðri gagnaöflun verður til gagnagrunnur sem nýtist bæði á fræðilegum vettvangi og í hagnýtum tilgangi.
Verkefnið hefur því mikið gildi fyrir alla þá sem vilja skilja betur stöðu og þróun mannauðsmála í alþjóðlegu samhengi.
Markmiðið er að viðhalda og byggja upp þekkingu á sviði mannauðsstjórnunar í hverju landi fyrir sig – sem og alþjóðlega. Fjallað er um aðferðir sem beitt í ráðningum, starfsþróun, frammistöðumati, kjaramálum og samskiptum, auk greiningar á þroskastigum mannauðsstjórnunar. Auk þess er komið inn á þætti er varða sjálfvirknivæðingu, gervigreind og aðgerðir á sviði heilsu og velferðar.
Nánari upplýsingar um alþjóðlega verkefnið og samstarfsaðila þess eru á vefsíðu CRANET.
Þátttaka Íslands
Ísland hefur tekið þátt í CRANET frá árinu 2003. Þátttakan hefur tryggt reglubundna gagnaöflun hér á landi og stuðlað að uppbyggingu gagnagrunns sem gerir mögulegt að fylgjast með þróun á sviði mannauðsmála til skemmri og lengri tíma.
Dr. Arney Einarsdóttir, dósent við viðskiptadeild Háskólans á Bifröst og fagstjóri námslínu á sviði mannauðsstjórnar á meistarastigi, hefur frá árinu 2005 stýrt CRANET fyrir Íslands hönd. Stýrihóp CRANET á Íslandi skipa ásamt dr. Arneyju þær dr. Katrín Ólafsdóttir dósent við HR og dr. Ásta Bjarnadóttir skrifstofustjóri starfsþróunar og starfsumhverfis hjá Reykjavíkurborg.
Þátttaka Íslands í verkefninu er mikilvægur liður í því að efla þekkingu á mannauðsstjórnun hér á landi og tengja íslenskan veruleika við alþjóðlegt rannsóknarsamhengi. Verkefnið hefur þannig bæði fræðilegt og hagnýtt gildi og styrkir umræðu, stefnumótun og faglega þróun á sviðinu.
Mikilvægi rannsóknarinnar
Samhæfð gagnaöflun og gagnagrunnur á borð við þann sem byggður hefur verið upp innan CRANET gefur einstakt tækifæri til að skoða mannauðsmál í breiðu samhengi. Verkefnið styður við:
- samanburð milli landa
- samanburð milli atvinnugreina og svæða
- greiningu á þróun yfir tíma
- uppbyggingu þekkingar á sviði mannauðsstjórnunar
Þessi nálgun gerir fræðasamfélaginu, stjórnendum og sérfræðingum kleift að byggja ákvarðanir, stefnumótun og frekari rannsóknir á traustum grunni.
Ný skýrsla væntanleg í nóvember
Stefnt á útgáfu á skýrslu um mannauðsmál með alþjóðlegum samanburði og greiningu á þróun á ýmsum sviðum mannauðsmála í lok nóvember undir yfirskriftinni: Lykilmælikvarðar, staða og þróun mannauðsmála á Íslandi – Alþjóðlega CRANET rannsóknin 2026.
Frekari niðurstöður verða kynntar og skýrsla gefin út á morgunfundi föstudaginn 20. nóvember kl. 9:00 - 10:30 í Tjarnarsalnum í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Dr. Arney Einarsdóttir, dr. Katrín Ólafsdóttir og dr. Ásta Bjarnadóttir sem leiða Cranet verkefnið á Íslandi, ásamt þeim Arndísi Vilhjálmsdóttur og Hans Haraldssyni sérfræðingum í úrtaksrannsóknum hjá Spectis.
Vissir þú?
- Að árið 2026 eiga um 70% yfirmanna mannauðsmála sæti í framkvæmdastjórn eða sambærilegu æðsta stjórnunarteymi í fyrirtækjum og stofnunum þar sem starfa 70 eða fleiri starfsmenn - og að þróunin er jákvæð hvað það varðar frá árinu 2021.
- Að það tekur styttri tíma að ráða stjórnendur en sérfræðinga á Íslandi. Þegar er verið að ráða stjórnendur til starfa tekur ráðningarferlið að meðaltali 33 daga á Íslandi, en 39 daga þegar verið er að ráða sérfræðinga, frá því staða er opnuð og ferlið hefst, þar til skrifað hefur verið undir ráðningarsamning.
- Að í um 77% skipulagsheilda á Íslandi eru svo til öll eða flest vinnusvæði skrifstofufólks og sérfræðihópa skipulögð sem opin vinnurými.
Hér má nálgast síðustu skýrslu Executive Report, nýja alþjóðlega skýrslu sem CRANET birti í desember 2021.


