Þjálfun og þróun
Fyrstu vikurnar í nýju starfi móta oft hvernig fólki reiðir af. En hvernig tryggjum við að þjálfun sé markviss, samræmd og skili sér í daglegu starfi?
Markviss móttaka, þjálfun og þróun starfsfólks skiptir máli fyrir bæði nýja og reynda starfsmenn. Með skýrri þekkingarmiðlun og skipulögðum stuðningi má efla hæfni starfsfólks og skapa meiri samræmi í þjálfun innan vinnustaðarins.
Á þessari hagnýtu vinnustofu kynnast þátttakendur leiðum til að skipuleggja þjálfun, miðla þekkingu og styðja við nám í daglegu starfi. Áhersla er lögð á að tengja fræðsluna við raunveruleg móttöku- og þjálfunarferli vinnustaðarins.
Fyrir hverja?
Vinnustofan er ætluð stjórnendum, mannauðsfólki, leiðbeinendum og öllum sem koma að þjálfun eða miðlun þekkingar til samstarfsfólks.
Ekki er gerð krafa um forþekkingu.
Markmið og ávinningur
Þátttakendur læra að:
-
Miðla þekkingu á skýran og markvissan hátt.
-
Skipuleggja móttöku nýs starfsfólks.
-
Styðja við nám og hæfniuppbyggingu í daglegu starfi.
-
Fylgja þjálfun eftir og meta hvernig hún skilar sér í framkvæmd.
Fyrir vinnustaðinn getur vinnustofan stuðlað að markvissari og samræmdari þjálfun. Með því að vinna með núverandi móttöku- og þjálfunarferli fyrirtækisins geta þátttakendur greint tækifæri til úrbóta sem nýtast beint í starfseminni.
Helstu viðfangsefni
Viðfangsefnin eru valin í samráði við fyrirtækið og geta meðal annars verið:
-
Móttaka nýs starfsfólks: Hvernig skipuleggja má fyrstu vikurnar í starfi.
-
Miðlun þekkingar: Leiðir til að koma þekkingu til skila á skýran og markvissan hátt.
-
Vinnustaðamenning: Hvernig menning og gildi vinnustaðarins berast til nýs starfsfólks.
-
Nám í daglegu starfi: Stuðningur við hæfniuppbyggingu utan formlegrar þjálfunar.
-
Samskipti og eftirfylgni: Hlutverk leiðbeinenda og stjórnenda eftir að þjálfun lýkur.
-
Mat á þjálfun: Hvernig meta má hvort þjálfun skili sér í framkvæmd.
Fyrirkomulag
Vinnustofa (3 klukkustundir): Hagnýt fræðsla sem sameinar fræðilega umfjöllun og verklegar æfingar.
Þátttakendur fá tækifæri til að vinna með eigin reynslu og þjálfunarferli vinnustaðarins.
Sérsniðið að þörfum vinnustaðarins
Vinnustofan er sniðin að þörfum og áherslum hvers fyrirtækis eða stofnunar.
Áður en hún fer fram er rætt við fulltrúa vinnustaðarins til að greina þarfir og velja áherslur. Hægt er að vinna með núverandi móttöku- og þjálfunarferli, rýna þau og finna leiðir til úrbóta.
Einnig er hægt að lengja vinnustofuna eða bæta við eftirfylgni eftir þörfum.
Kennari
Auður Hrefna Guðmundsdóttir er framkvæmdastjóri UN Global Compact á Íslandi, samtaka Sameinuðu þjóðanna um ábyrga viðskiptahætti, og stundakennari við Háskólann á Bifröst.
Hún starfaði áður um árabil við fræðslu, þjálfun og mannauðsmál hjá Landsbankanum. Hún hefur einnig sinnt verkefnastjórnun og stjórnsýslu hjá Háskólanum í Reykjavík og Opna háskólanum.
Auður Hrefna er með B.Ed.-gráðu í kennslufræðum og ML-gráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Í störfum sínum leggur hún meðal annars áherslu á þróun mannauðs, sjálfbærni og samfélagslega ábyrgð fyrirtækja.
Hagnýtar upplýsingar
-
Tímalengd: 3 klukkustundir.
-
Staðsetning: Á starfsstöð fyrirtækisins, á netinu eða samkvæmt óskum fyrirtækisins.
-
Fjöldi þátttakenda: Samkvæmt þörfum og samkomulagi.
-
Forþekking: Ekki krafist.
-
Fyrirkomulag: Sérpöntun.
Pöntun og nánari upplýsingar
Viltu efla þjálfun starfsfólks og skapa markvissari móttöku nýrra starfsmanna?
Álfheiður hjá Endurmenntun Háskólans á Bifröst veitir nánari upplýsingar og tekur við fyrirspurnum og pöntunum á netfanginu endurmenntun [hjá] bifrost.is.
