Grunnnámskeið í stafrænni hönnun

Grunnnámskeið í stafrænni hönnun

Námskeiðið er alhliða grunnnámskeið í stafrænni fatahönnun og fatagerð. Þátttakendur munu skilja og geta beitt stafrænum hönnunarreglum í samhengi við faghönnun í tískuiðnaði. Þeir öðlast grunn í notkun CLO3D hugbúnaðar sem er öflugt hönnunarforrit við gerð stafrænna sniða sem saumuð eru upp sem sýndarfatnaður. Hugbúnaðurinn sem nemendur læra að beita er að gjörbylta hönnunar- og framleiðsluferlum í tískuiðnaði. Þátttakendur munu læra hvernig þeir geta yfirfært skapandi hugmyndir sínar á raunhæfar þrívíddarflíkur, sem straumlínulagar hönnunarferlið, gerir það auðveldara og skilvirkara og dregur verulega úr umhverfis spori í hönnunarferlinu.

Fyrir hverja, þátttökugjald, forkröfur og einingar

Námskeiðið er fyrir þá sem vilja öðlast færnií að nýta helstu verkfæri CLO3d, hafa færni til að lesa upplýsingar um galla í hönnun sinni og hvernig er best að laga flíkur út frá gefnum upplýsingum. 

Þátttökugjald er 125.000 kr.

Engir undanfarar / forkröfur skráðar á námskeiðið.

Námskeiðið veitir ekki einingar. 

Fyrirkomulag

Námskeiðið er kennt í fjarnámi. Námskeiðið stendur yfir í sex vikur auk þess sem ein vika er til viðbótar fyrir námsmat. Kennsla hefst 18. ágúst og stendur yfir til 4. október 2025. Námsmat fer fram dagana 28. september - 4. október . Staðlota er í Borgarfirði dagana 4. - 7. september 2025.

Kennari

Kennari námskeiðsins er Björg Jónsdóttir.

Styrkir

Mörg stéttarfélög bjóða upp á styrki vegna námskeiða. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi.

Umsóknarfrestur og skráning

Umsóknarfrestur er til 14. ágúst 2025.

Vinsamlegast láttu fylgja gögn í viðhengi sem sýna að þú uppfyllir aðgangsviðmið. 

Allar nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun@bifrost.is

 

Skráning


Skrá mig

Smelltu á hnappinn til að sæka um námskeið í Endurmenntun Háskólans á Bifröst.

 

Svona skráir þú þig á námskeið:

  1. Fylla þarf út umsóknareyðublað í umsóknargáttinni.
  2. Ef þú skráir þig í námskeið með aðgangsviðmið, þarftu að bíða eftir að samþykki berist með tölvupósti.
  3. Til að ljúka við skráningu þarf að ganga frá greiðslu í umsóknargátt og sækja um notendanafn fyrir innra kennslukerfi Háskólans á Bifröst, Uglu https://ugla.bifrost.is. Þar birtast allar upplýsingar um námskeiðið.

Nánari upplýsingar eru veittar á endurmenntun@bifrost.is eða í síma 433 3000.