Örugg tjáning – betri samskipti

Hvernig getum við tjáð okkur af öryggi á fundum, í ræðustóli eða í fjölmiðlum – jafnvel þótt sviðsskrekkurinn láti á sér kræla?

Mörgum þykir erfitt að standa upp á fundi, halda erindi eða svara spurningum fjölmiðla, jafnvel fólki sem hefur mikið fram að færa. Með réttri nálgun er hægt að styrkja öryggi í framkomu og læra að nýta sviðsskrekkinn í stað þess að láta hann standa í vegi.

Á þessari hagnýtu og léttu vinnustofu kynnast þátttakendur leiðum til að tjá sig af öryggi, koma hugmyndum sínum á framfæri og nýta fundi, ráðstefnur og fjölmiðla til að kynna starfsemi vinnustaðarins.

Fyrir hverja?

Vinnustofan er ætluð öllu starfsfólki og hentar jafnt þeim sem eru vanir að koma fram og þeim sem hafa litla reynslu af því.

Ekki er gerð krafa um forþekkingu. Hver þátttakandi ræður sjálfur hvort hann tekur þátt í verkefnunum.

Markmið og ávinningur

Að vinnustofunni lokinni eiga þátttakendur að:

  • Geta tjáð sig af meira öryggi og nýtt fundi, fjölmiðla, ráðstefnur og aðra viðburði til að koma sér og vinnustað sínum á framfæri.

  • Hafa eflt samskiptafærni sína og geta lagt sitt af mörkum til að rækta góðan starfsanda.

Vinnustaðurinn nýtur góðs af starfsfólki sem getur kynnt starfsemina, vörur og þjónustu af öryggi og komið skilaboðum skýrt til skila.

Helstu viðfangsefni

  • Að tjá sig af öryggi: Grunnurinn að góðri framkomu

  • Framkoma í ræðustóli: Hvernig flytja má erindi þannig að það nái til áheyrenda

  • Fundir og fjölmiðlar: Hvað einkennir þá sem koma best fram

  • Sviðsskrekkur: Ráð til að nýta hann í stað þess að láta hann hamla sér

  • Að koma vöru og þjónustu á framfæri: Skýr og sannfærandi kynning

  • Samskiptafærni: Samskipti sem styrkja starfsandann

Fyrirkomulag

Vinnustofa (3 klukkustundir): Hagnýt og létt fræðsla sem fer fram á starfsstöð fyrirtækisins.

Lögð er áhersla á hagnýt verkefni og leiðir sem þátttakendur geta nýtt í daglegu starfi. Hver þátttakandi ræður sjálfur hvort hann tekur þátt í verkefnunum.

Vinnustofan byggir á bókum Sirrýjar og áralangri kennslu hennar við Háskólann á Bifröst. Fjölmargir vinnustaðir, hópar og félagasamtök hafa nýtt sér námskeið hennar.

Sérsniðið að þörfum vinnustaðarins

Vinnustofan er aðlöguð að þörfum og áherslum hvers fyrirtækis eða stofnunar.

Áður en hún fer fram er rætt við fulltrúa vinnustaðarins um þarfir hópsins. Hægt er að leggja sérstaka áherslu á tiltekna þætti, til dæmis framkomu í fjölmiðlum eða kynningu á vörum og þjónustu.

Einnig er hægt að lengja vinnustofuna eða bæta við eftirfylgni.

Kennari

Sirrý Arnardóttir er stjórnendaþjálfari, fyrirlesari, rithöfundur og stundakennari við Háskólann á Bifröst.

Hún starfaði í yfir 30 ár í íslenskum fjölmiðlum, meðal annars á Rás 2 og Hringbraut, en hefur undanfarin ár helgað sig stjórnendaþjálfun, námskeiðahaldi og kennslu.

Sirrý lauk BA-prófi í félags- og fjölmiðlafræði frá Háskóla Íslands og stundaði framhaldsnám í fjölmiðlun í Bandaríkjunum. Við Háskólann á Bifröst hefur hún um árabil kennt námskeið á borð við Fjölmiðlafærni og Framsetningu og sölu hugmynda.

Hún er höfundur sjö bóka um tjáningu, samskiptafærni og sjálfseflingu. Í kennslu sinni leggur hún áherslu á hagnýt verkfæri, örugga framkomu, virka hlustun og leiðir til að yfirstíga sviðsskrekk.

Hagnýtar upplýsingar

  • Tímalengd: 3 klukkustundir

  • Staðsetning: Á starfsstöð fyrirtækisins

  • Fjöldi þátttakenda: Samkvæmt þörfum og samkomulagi

  • Forþekking: Ekki krafist

  • Fyrirkomulag: Sérpöntun

Pöntun og nánari upplýsingar

Viltu efla öryggi starfsfólks í framkomu og hjálpa því að koma hugmyndum sínum á framfæri?

Álfheiður hjá Endurmenntun Háskólans á Bifröst veitir nánari upplýsingar og tekur við fyrirspurnum og pöntunum á netfanginu endurmenntun [hjá] bifrost.is.