Fyrirtækjalögfræði

Fyrirtækjalögfræði

Í flóknu starfsumhverfi fyrirtækja er nokkur þekking á lögum orðin snar þáttur í störfum margra sérfræðinga og stjórnenda. Í þessari námsleið fá nemendur innsýn í grunnreglur lögfræðinnar og hagnýta þekkingu á reglum félagaréttar, þ.e. þær reglur sem eiga við um þau félagaform sem algengast er að fyrirtæki hér á landi séu rekin í, hf. og ehf.

Námskeiðið er fyrir þá sem vilja öðlast færni og hagnýta þekkingu á reglum félagaréttar og fá grunn innsýn í reglur lögfræðinnar. 

Fjöldi ECTS eininga og dreifing vinnuálags

Námskeiðið veitir 24 ECTS einingar á framhaldsstigi og geta nýst til MBL gráðu í viðskiptalögfræði að teknu tilliti til reglna háskólans um mat á fyrra námi. Hvert námskeið er kennt í sjö vikna lotu í fjárnámi. Þrjár lotur sem dreifast á tvær annir. Sé nemandi búinn með inngang að lögfræði er hægt að koma inn og einungis taka seinni tvö námskeiðin.

Aðgangsviðmið og umsóknarfrestur 

Umsóknarfrestur er til 9. ágúst 2026

Gerð er krafa um að umsækjandi hafi lokið grunnháskólagráðu (bakkalár), sem að jafnaði hefur verið lokið með fyrstu einkunn (7,25 eða hærra) eða jafngildi þess.

Vinsamlegast láttu fylgja gögn í viðhengi með umsókn sem sýna að þú uppfyllir aðgangsviðmið. 

Allar nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu lagadeild hja bifrost.is  

Fagstjóri námsins er Elín H. Jónsdóttir

  • Aðgangsviðmið

    Gerð er krafa um að umsækjandi hafi lokið grunnháskólagráðu (bakkalár), sem að jafnaði hefur verið lokið með fyrstu einkunn (7,25 eða hærra) eða jafngildi þess.

    Umsækjendur sem hafa grunngráðu í lögfræði þurfa ekki að taka Inngang að lögfræði til þess að skrá sig í þetta örnám.

  • Hæfnis- og lærdómsviðmið

    Nemandi hafi öðlast þjálfun í fræðilegum og hagnýtum þáttum sem snúa að úrlausn lögfræðilegra álitaefna í tengslum við sjálfbærni. Þekki og skilji alla helstu þætti er viðkoma sjálfbærni fyrir fyrirtæki, stofnanir eða þriðja aðila á lagaeglum grundvelli.

     Nemandi öðlast getu og hæfni til þess að afla og greina viðeigandi gögn og heimildir og rökstyðja lögfræðilega niðurstöðu. Auk þess að geta rökrætt og tjáð sig um lagaleg úrlausnarefni á faglegan máta ásamt því að að geta tekið sjálfstæðar, faglegar ákvarðanir og rökstutt þær á lögfræðilegum grunni.

  • Námsmat

    Áhersla er á verkefnadrifið námsmat þar sem nemendur vinna m.a. raunhæf verkefni, spurningakannanir, ritgerðir og munnlegt eða skrifleg próf auk þess að taka þátt í umræðum.

  • Að námi loknu

    Nemandi sem lýkur námsleið í örnámi fær staðfestingu á námslokum með upplýsingum um fjölda ECTS eininga. Hann fær einnig námsferilsyfirlit með upplýsingum um skipulagningu örnámsins.

    Námskeið í örnámi leiða ekki að prófgráðu.

    Nemandi sem lýkur stökum námskeiðum í örnámi til ECTS eininga, en ekki fullri námsleið fær námsferilsyfirlit yfir lokin námskeið.

    Nemandi sem lýkur ekki ECTS einingum fær ekki staðfestingu á námslokum, en þeir geta fengið staðfestingu á skráningu.

    Einingum sem lokið er í þessari námslínu geta nýst til MBL gráðu í viðskiptalögfræði að teknu tilliti til reglna háskólans um mat á fyrra námi.

Fyrirtækjalögfræði

Inngangur að lögfræði