Fyrirtækjaskóli

Fræðslulausnir fyrir fyrirtæki og stofnanir

Endurmenntun Háskólans á Bifröst býður upp á sérsniðnar fræðslulausnir fyrir fyrirtæki og stofnanir sem vilja efla hæfni, færni og faglega þróun starfsfólks. Lausnir okkar byggja á sterkum akademískum grunni og nánu samstarfi við atvinnulífið. 

Við þróum námskeið, fyrirtækjaskóla og fræðsluverkefni í takt við þarfir fyrirtækja, markmið skipulagsheilda og síbreytilegar kröfur vinnumarkaðarins. Með þessu tryggjum við að fræðslan skili raunverulegum og mælanlegum árangri. 

Sérsniðin námskeið og fyrirtækjaskólar 

Endurmenntun Bifrastar býður meðal annars upp á: 

  • Sérsniðin einstök námskeið fyrir fyrirtæki 
  • Fyrirtækjaskóla í samstarfi við atvinnulífið 
  • Hagnýt fræðsla fyrir stjórnendur og starfsfólk 
  • Sveigjanlegt nám sem aðlagast starfsemi fyrirtækja 

Öll námskeið eru mótuð í nánu samstarfi við viðskiptavini með áherslu á faglegt gildi, hagnýta nálgun og raunverulegan ávinning. 

Reynslumikill samstarfsaðili 

Með áralanga reynslu af fræðslu og endurmenntun fyrir fyrirtæki og stofnanir höfum við stutt markvisst við: 

  • Starfsþróun og símenntun 
  • Markvissa hæfniuppbyggingu starfsfólks 
  • Stefnumótandi mannauðsstjórnun 

Endurmenntun Bifrastar sameinar fræðilega þekkingu, innsýn í þarfir atvinnulífsins og sveigjanlega kennsluhætti. 

Námskeið og vinnustofur

Fyrirtækjaskóli
Þjónandi forysta Vinnustofa

Þjónandi forysta

Hvað þarf til að skapa vinnustað þar sem fólk treystir hvert öðru, tekur ábyrgð og fær svigrúm til að vaxa og nýta styrkleika sína?

Þjónandi forysta byggist á trausti, virkri hlustun, sjálfsþekkingu og sameiginlegri sýn. Hugmyndafræðin leggur áherslu á að skapa starfsumhverfi þar sem fólk fær tækifæri til að vaxa, taka ábyrgð og leggja sitt af mörkum.

Á þessari hagnýtu vinnustofu kynnast þátttakendur helstu þáttum þjónandi forystu og hvernig nýta má hugmyndafræðina til að efla samskipti, samvinnu og vinnustaðamenningu.

Sérpöntun
3 klst.
Skúli Ólafsson

Sérpöntun
Fyrirtækjaskóli
Sala og samningatækni Vinnustofa

Sala og samningatækni

Hvað greinir á milli sölusamtals sem skilar árangri og samtals sem rennur út í sandinn? Hvernig byggjum við upp traust í samningaviðræðum?

Lærðu að greina þarfir viðskiptavina, beita virkri hlustun og nýta árangursríkar aðferðir í sölu og samningatækni.

Á þessari hagnýtu vinnustofu æfa þátttakendur sig í sölusamtölum og samningaviðræðum með hlutverkaleikjum sem tengjast raunverulegum aðstæðum í starfi.

Sérpöntun
3 klst.
Agnes Gunnarsdóttir

Sérpöntun
Fyrirtækjaskóli
Þjálfun og þróun Vinnustofa

Þjálfun og þróun

Hvernig tryggjum við að nýtt starfsfólk fái góða þjálfun og að þekking skili sér í daglegu starfi?

Lærðu að skipuleggja móttöku starfsfólks, miðla þekkingu á skýran hátt og styðja við hæfniuppbyggingu. Einnig er fjallað um eftirfylgni og hvernig meta má árangur þjálfunar.

Á þessari hagnýtu vinnustofu vinna þátttakendur með eigin móttöku- og þjálfunarferli, greina tækifæri til úrbóta og finna leiðir til að gera þjálfun markvissari og samræmdari.

Sérpöntun
3 klst.
Auður Hrefna Guðmundsdóttir

Sérpöntun
Fyrirtækjaskóli
Vörumerki og markaðssamskipti Vinnustofa

Vörumerki og markaðssamskipti

Veit starfsfólkið ykkar fyrir hvað vörumerkið stendur? Eru allir að segja sömu söguna?

Lærðu hvernig skýr vörumerkjastefna, samræmd skilaboð og markviss markaðssamskipti styrkja vörumerkið og skapa heildstæða upplifun fyrir viðskiptavini.

Í boði er fyrirlestur eða vinnustofa þar sem þátttakendur vinna með vörumerki eigin fyrirtækis, skoða hvernig það birtist í samskiptum við viðskiptavini og læra að miðla skýrum og samræmdum skilaboðum.

Sérpöntun
3 klst. eða 90 mín.
Agnes Gunnarsdóttir

Sérpöntun
Fyrirtækjaskóli
CRM Stefnumiðuð stjórnun viðskiptatengsla Vinnustofa

CRM Stefnumiðuð stjórnun viðskiptatengsla

Hvað fær viðskiptavini til að halda tryggð við fyrirtækið ykkar? Og hvernig getið þið byggt upp sterkari viðskiptatengsl?

Lærðu hvernig CRM styður við öflun nýrra viðskiptavina, bætta þjónustu og aukna viðskiptatryggð.

Í boði er fyrirlestur eða vinnustofa þar sem fjallað er um CRM-hugmyndafræðina, innleiðingu og skipulagningu og hvernig tæknin styður við stjórnun viðskiptatengsla.

Sérpöntun
3 klst. eða 90 mín.
Agnes Gunnarsdóttir

Sérpöntun
Fyrirtækjaskóli
Samskipti og tjáning á vinnustöðum Námskeið

Samskipti og tjáning á vinnustöðum

Hvernig hefur slúður áhrif á starfsandann? Og hvað einkennir góð samskipti á vinnustað?

Lærðu hvernig skilvirk samskipti, líkamstjáning og skilningur á ólíkum einstaklingum geta stuðlað að betri samskiptum og samstarfi.

Á þessu netnámskeiði hlusta þátttakendur á fyrirlestra þegar þeim hentar. Í lok námskeiðsins er opinn umræðufundur á Teams þar sem hægt er að ræða viðfangsefnin nánar við kennara.

Sérpöntun
5 klst.
Gréta Bergrún Jóhannesdóttir

Sérpöntun

Hafðu samband

Hafðu samband við Álfheiði hjá Endurmenntun Háskólans á Bifröst og fáðu kynningu á sérsniðnum fræðslulausnum fyrir þitt fyrirtæki. 

alfheidur [hjá] bifrost.is