Lögfræði fjármálamarkaða

Lögfræði fjármálamarkaða

Í flóknu starfsumhverfi fjármálafyrirtækja er þekking á lögum orðin snar þáttur í störfum margra sérfræðinga og stjórnenda. Í þessari námsleið fá nemendur innsýn í grunnreglur lögfræðinnar og hagnýta þekkingu á reglum fjármálamarkaðsréttar, þ.á.m. þær reglur sem setja fjármálamarkaðnum umgjörð og fjalla um stofnanauppbyggingu kerfisins sem og reglur verðbréfamarkaðar. 

Fjöldi eininga og dreifing vinnuálags

Námið er samtals 18 ECTS einingar og samanstendur af þremur námskeiðum sem eru 6 ECTS einingar hvert. Hvert námskeið er kennt í sjö vikna lotu í fjárnámi. Þrjár lotur sem dreifast á tvær annir.

Verð 

Þátttökugjald er 225.000 kr.  Flest stéttarfélög niðurgreiða hluta námskeiðsgjalda fyrir sína félagsmenn. 

Umsækjendur sem hafa grunngráðu í lögfræði þurfa ekki að taka námskeiðið Inngangur að lögfræði og greiða því lægra þátttökugjald sem nemur 75.000 krónum. 

Aðgangsviðmið og umsóknarfrestur 

Umsóknarfrestur er til 10. ágúst 2025.  

Gerð er krafa um að umsækjandi hafi lokið grunnháskólagráðu (bakkalár), sem að jafnaði hefur verið lokið með fyrstu einkunn (7,25 eða hærra) eða jafngildi þess.

Vinsamlegast láttu fylgja gögn í viðhengi með umsókn sem sýna að þú uppfyllir aðgangsviðmið. 

Allar nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun hja bifrost.is  

Fagstjóri námsins er Elín H. Jónsdóttir

Námskeiðið veitir 18 ECTS einingar á framhaldsstigi og einingum sem lokið er í þessari námslínu geta nýst til MBL gráðu í viðskiptalögfræði að teknu tilliti til reglna háskólans um mat á fyrra námi.

 

Skráning


Skrá mig

Smelltu á hnappinn til að sæka um námskeið í Endurmenntun Háskólans á Bifröst.

 

Svona skráir þú þig á námskeið:

  1. Fylla þarf út umsóknareyðublað í umsóknargáttinni.
  2. Ef þú skráir þig í námskeið með aðgangsviðmið, þarftu að bíða eftir að samþykki berist með tölvupósti.
  3. Til að ljúka við skráningu þarf að ganga frá greiðslu í umsóknargátt og sækja um notendanafn fyrir innra kennslukerfi Háskólans á Bifröst, Uglu https://ugla.bifrost.is. Þar birtast allar upplýsingar um námskeiðið.

Nánari upplýsingar eru veittar á endurmenntun@bifrost.is eða í síma 433 3000.

Fjármálamarkaðir

Inngangur að lögfræði