Kaupmennska
Hvað fær viðskiptavini til að velja verslunina ykkar og koma aftur?
Árangur í verslun og smásölu byggist á samspili margra þátta. Vöruúrval, verð, dreifing, kynning og þjónusta skipta öllu máli, ekki síður en staða verslunarinnar gagnvart samkeppninni.
Í þessari vinnustofu er fjallað um markaðsfræði verslana og hvernig nýta má þekkingu á markaðnum, samkeppnisumhverfinu og þörfum viðskiptavina til að styrkja reksturinn og byggja upp ánægju og tryggð viðskiptavina.
Fyrir hverja?
Fræðslan er ætluð fyrirtækjum í verslun og smásölu og starfsfólki þeirra sem vill efla þekkingu sína á markaðsfræði verslana, þjónustu og samkeppnishæfni.
Ekki er gerð krafa um forþekkingu.
Markmið og ávinningur
Þátttakendur öðlast þekkingu til að:
-
Skilja hvernig söluráðarnir fjórir – vara, verð, dreifing og kynning – birtast í verslunarrekstri.
-
Greina markaðs- og samkeppnisumhverfi verslunar.
-
Átta sig á hvað stuðlar að ánægju og tryggð viðskiptavina.
-
Þekkja muninn á samskiptum við fyrirtæki (B2B) og einstaklinga (B2C).
-
Byggja upp traust og veita þjónustu sem stuðlar að lausnum sem gagnast báðum aðilum.
Í vinnustofunni vinna þátttakendur með samkeppnisumhverfi og viðskiptavini eigin fyrirtækis. Þannig tengist fræðslan beint þeim verkefnum og áskorunum sem þeir mæta í daglegum rekstri.
Helstu viðfangsefni
-
Markaðsfræði verslana og söluráðar: Hvernig vara, verð, dreifing og kynning vinna saman í verslunarrekstri.
-
Markaðsstjórnun: Skipulag og stjórnun markaðsstarfs verslunar.
-
Markaðs- og samkeppnisrannsóknir: Að greina markaðinn og stöðu fyrirtækisins gagnvart samkeppnisaðilum.
-
Ánægja og tryggð viðskiptavina: Hvað fær viðskiptavini til að koma aftur?
-
Sölumennska, traust og þjónusta: Samskipti við ólíka hópa viðskiptavina og lausnir sem gagnast báðum aðilum.
Fyrirkomulag
Fræðslan er í boði í tveimur útfærslum:
-
Fyrirlestur (90 mínútur): Hagnýt yfirsýn yfir helstu þætti markaðsfræði verslana, samkeppnisumhverfi og tryggð viðskiptavina.
-
Vinnustofa (3 klukkustundir): Verklegar æfingar þar sem þátttakendur vinna með samkeppnisumhverfi og viðskiptavini eigin fyrirtækis, meðal annars með samkeppnisgreiningu.
Sérsniðið að þörfum vinnustaðarins
Fræðslan er aðlöguð að þörfum og markmiðum hvers fyrirtækis eða stofnunar.
Áður en fyrirlestur eða vinnustofa fer fram er rætt við fulltrúa vinnustaðarins um áherslur og viðfangsefni. Hægt er að leggja sérstaka áherslu á tiltekna þætti, svo sem samkeppnisgreiningu eða tryggð viðskiptavina.
Einnig er hægt að lengja vinnustofuna eða bæta við eftirfylgni eftir þörfum.
Kennari
Agnes Gunnarsdóttir er stundakennari við viðskiptadeild Háskólans á Bifröst og hefur kennt þar frá árinu 2013, meðal annars rekstrar- og sölustjórnun.
Hún hefur víðtæka stjórnunarreynslu úr íslensku atvinnulífi og hefur meðal annars verið framkvæmdastjóri FlyOver Iceland og Perlu norðursins (Perlan Museum) auk þess að hafa stýrt sölu- og markaðssviði Íslenska gámafélagsins.
Agnes lauk meistaragráðu í stjórnun og markaðsfræði frá Háskólanum á Bifröst. Í kennslu sinni leggur hún áherslu á hagnýta nálgun, stefnumótun og hvernig nýta má fræðileg verkfæri í daglegum rekstri.
Hagnýtar upplýsingar
-
Tímalengd: Fyrirlestur 90 mínútur eða vinnustofa 3 klukkustundir.
-
Staðsetning: Á starfsstöð fyrirtækisins, á netinu eða samkvæmt óskum fyrirtækisins.
-
Fjöldi þátttakenda: Samkvæmt þörfum og samkomulagi.
-
Forþekking: Ekki krafist.
-
Fyrirkomulag: Sérpöntun fyrir fyrirtæki og stofnanir.
Pöntun og nánari upplýsingar
Viltu styrkja samkeppnishæfni verslunarinnar og efla ánægju og tryggð viðskiptavina?
Hafðu samband við Endurmenntun Háskólans á Bifröst og fáðu fræðslu sem er sniðin að þörfum þíns fyrirtækis.
Álfheiður hjá Endurmenntun Háskólans á Bifröst veitir nánari upplýsingar og tekur við fyrirspurnum og pöntunum á netfanginu endurmenntun [hjá] bifrost.is.