Vel heppnuð alþjóðavika
18. maí 2026

Vel heppnuð alþjóðavika

Alþjóðavika Háskólans á Bifröst hófst 11. maí og stóð til loka dags 13. maí. Alls tóku þátt 23 akademískir starfsmenn og stjórnendur frá átta háskólum innan OpenEU-bandalagsins. Markmið vikunnar var að skapa vettvang fyrir starfsfólk háskólanna til að eiga samtal, efla tengsl og miðla þekkingu um bestu starfsvenjur í fjarnámi og stafrænu námsumhverfi.

Á dagskrá vikunnar voru fjölbreyttar vinnustofur og fyrirlestrar. Þar var meðal annars fjallað um notkun gagna til að greina hvaða nemendur þurfa sérstakan stuðning, líf fjarnema, hönnunarhugsun í teymisvinnu, símenntun og aðgengi ólíkra hópa að háskólanámi, auk fyrirlesturs um próftökuvöktun með hjálp gervigreindar.

Meðal þeirra sem stýrðu vinnustofum og fyrirlestrum voru Magnús Árni Skjöld, Helga Rós Einarsdóttir, Unnur Símonardóttir, Sævar Ari Finnbogason, Sara Bergsdóttir, Michael Hendrix, Guðrún Rannveig Stefánsdóttir, Einar Hreinsson, Hlynur Finnbogason og Helena Dögg Haraldsdóttir.

Auk fræðilegrar dagskrár var lögð áhersla á félagslega samveru og kynningu á íslenskri menningu. Gestir fóru meðal annars í skipulagða gönguferð um miðbæ Reykjavíkur þar sem Einar og María voru leiðsögumenn. Þá var einnig farið á singalong-kvöld hjá Mál og menningu sem vakti mikla lukku meðal þátttakenda.

Vikunni lauk með ferð í Borgarfjörð þar sem gestir heimsóttu Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri og tóku þátt í tveimur vinnustofum. Að því loknu voru náttúruperlur Borgarfjarðar skoðaðar, meðal annars Hraunfossar, Barnafoss og Reykholt. Einar Hreinsson var leiðsögumaður í ferðinni og fræddi gesti um sögu og staðhætti með skemmtilegum tilþrifum og húmor.

Að loknum degi eftir ferðina í Borgarfjörð hittust þátttakendur svo í Mathöllinni á Hafnartorgi þar sem hópurinn naut góðrar samveru eftir viðburðaríka og vel heppnaða daga. Þátttakendur voru afar ánægðir með vikuna, skipulagið og móttökurnar. Framkvæmd viðburðarins gekk einstaklega vel í alla staði.

Skólarnir sem tóku þátt í alþjóðavikunni voru:

  • Universitat Oberta de Catalunya (UOC, Spánn – leiðandi stofnun bandalagsins)
  • Universidad Nacional de Educación a Distancia (UNED, Spánn)
  • Open Universiteit (Holland)
  • FernUniversität in Hagen (Þýskaland)
  • Universidade Aberta (Portúgal)
  • Hellenic Open University (Grikkland)
  • Bifröst University (Ísland)
  • Daugavpils University (Lettland)
  • St. Cyril and St. Methodius University of Veliko Tarnovo (Búlgaría)

Myndasafn