Nýjar áskoranir í öryggismálum:
Norðurslóðir og ytri mörk Evrópu

Svæðisbundnar áskoranir, hernaðarleg viðbrögð og nýtt hlutverk Evrópu í breyttri heimsmynd

Miðvikudaginn 13. maí 2026 stendur Félagsvísindadeild Háskólans á Bifröst fyrir alþjóðlegri ráðstefnu í Norræna húsinu í Reykjavík kl. 9:00–16:00.

Ráðstefnan er haldin undir merkjum Jean Monnet Chair verkefnisins Iceland’s Strategic Role in Arctic and European Security (ISARCEUR) við Háskólann á Bifröst, í samstarfi við sendiráð Póllands, Frakklands, Bandaríkjanna og Evrópusambandsins á Íslandi.

 Athugið að takmarkaður sætafjöldi er í boði. Frítt er inn á viðburðinn.

  • Skráning á ráðstefnuna 
  • Dagskrá ráðstefnunnar 
  • Beint streymi 

Á síðustu árum hafa öryggismál Evrópu tekið miklum breytingum. Innrás Rússlands í Úkraínu hefur umbreytt öryggisumhverfi álfunnar og aukið mikilvægi jaðarsvæða Evrópu, þar á meðal Norðurslóða og Norður-Atlantshafsins. Á sama tíma hafa fjölþáttaógnir, stafrænir innviðir, orkuskipti og aukin hernaðarleg viðvera stórvelda á norðurslóðum skapað nýjar áskoranir fyrir Evrópuríki og bandalög þeirra.

Ráðstefnan mun leiða saman fræðimenn, diplómata, sérfræðinga í öryggismálum og stefnumótendur frá Evrópu og Norður-Ameríku til að ræða:

  • breytt öryggislandslag Evrópu
  • hlutverk NATO og Evrópusambandsins
  • vaxandi mikilvægi Norðurslóða
  • fjölþáttaógnir og vernd mikilvægra innviða
  • hlutverk jaðarsvæða í evrópskri öryggisstefnu

Meðal þátttakenda eru fulltrúar frá Cambridge-háskóla, Cornell-háskóla, Evrópusambandinu, franska og pólska utanríkisráðuneytinu, bandaríska sendiráðinu og íslenskum öryggisstofnunum.

Fyrirlesarar koma úr ýmsum áttum, en á meðal þeirra eru: 


Dr. Viktorija (Victoria) Vdovytsjenko, alþjóðlega viðurkenndur sérfræðingur í öryggismálum Evrópu, nýsköpun í varnarmálum og samskiptum Úkraínu við ESB og NATO.

Hún er annar tveggja verkefnastjóra Future of Ukraine-áætlunarinnar við Centre for Geopolitics í Cambridge-háskóla, þar sem hún leiðir rannsóknir á skurðpunkti öryggisskipulags eftirstríðsáranna og hlutverki Úkraínu í því. Starf hennar beinist að strategískum þrílemmum í öryggismálum Evrópu, fælingarmætti með nýsköpun, fjölþátta hernaði og stjórnmálahagfræði endurreisnar. Hún veitir reglulega ráðgjöf til stefnumótandi aðila og er í samskiptum við sérfræðinga og fræðasamfélög víðs vegar um Bretland, Evrópu og Úkraínu.

Viktorija er með meistaragráðu og doktorsgráðu í utanríkisstefnu og heimssögu frá the Diplomatic Academy of Ukraine og tekur virkan þátt í stjórnendafræðslu, stefnumótunarþjálfun og áhrifamiklum alþjóðlegum viðræðum.



Sendiherra sendinefndar Evrópusambandsins á Íslandi

Clara Ganslandt sendiherra hefur starfað lengst af á ferli sínum í fylkingarbroddi utanríkisstefnu og í ytri samskiptum Evrópusambandsins. Hún gegnir nú embætti sendiherra Evrópusambandsins á Íslandi, en áður gegndi hún lykilhlutverkum innan utanríkisþjónustu Evrópusambandsins (EEAS), þar á meðal sem sérstakur sendifulltrúi í málefnum norðurslóða og sviðsstjóri fyrir Vestur-Evrópu. Sérþekking hennar spannar fjölbreytt og mikilvæg svið landfræðilegra stjórnmála, allt frá samskiptum við samstarfsaðila utan ESB, eins og Sviss og Noreg, til sameiginlegrar öryggis- og varnarmálastefnu ESB. Sendiherra Ganslandt er með meistarapróf í lögfræði (LL.M.) frá Háskólanum í Lundi og Diplôme d’Etudes Européennes Approfondies frá the College of Europe in Bruges.

 


Dr.Gregory Falco, dósent við Cornell University og stundakennari við Háskólann á Bifröst

Prófessor Gregory Falco er gestaprófessor í þjóðaröryggismálum við Bifröst og prófessor í geimverkfræði við Cornell-háskóla. Hann er stjórnarmaður NATO fyrir HEIST-áætlunina sem vinnur að því að beina fjarskiptum neðansjávarkapla til gervihnatta. Dr. Falco þróar nýja hernaðartækni fyrir norðurslóðir fyrir bandalagsþjóðir NATO.


Sjálfræði Evrópu í stefnumótun og þátttaka á norðurslóðum: franskt sjónarhorn

Antoine Michon fyrir Franska utanríkis- og Evrópumálaráðuneytið. Antoine hóf störf hjá Miðstöð greininga, áætlanagerða og stefnumótunar Utanríkis- og Evrópumálaráðuneytis Frakklands í september 2025 sem stefnumótunarfulltrúi í Evrópumálum. Áður starfaði hann sem sérstakur aðstoðarmaður framkvæmdastjóra ráðuneytisins um ESB málefni og sérstaks sendifulltrúa Frakklands fyrir evrópska stjórnmálabandalagið (2023–2024), og starfaði hjá ráðuneytisskrifstofu Frakklands fyrir Evrópumál (2021–2023). Sumarið 2025 var hann gestarannsakandi hjá Stofnuninni um Geopólitísk málefni í Brussel.


Pallborðsstjórnandi

Dr. Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir prófessor og rektor Háskólans á Bifröst er ráðstefnustjóri. Ólína er fræðimaður, rithöfundur og fyrrverandi alþingismaður. Á árunum 2009-2012 var hún formaður Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins og um skeið forseti þess. Hún var varaforseti Norðurlandaráðs 2015-2016.

Áherslur og verkefni Landhelgisgæslunnar á sviði öryggismála í Norður Atlantshafi.

Auðunn Kristinsson er framkvæmdastjóri sviðs stefnumótunar, þróunar aðgerða og siglingasviðs Landhelgisgæslunnar. Hann hefur starfað sem stýrimaður og skipherra á varðskipum, stýrimaður og sigmaður á þyrlum/flugvélum frá 1994. Aðstoðarframkvæmdastjóri og framkvæmdarstjóri frá 2012 til 2026. Lauk námi frá Sjómannaskólanum árið 1994, námi í verkefnastjórnun og leiðtogafærni frá Háskóla Íslands árið 2006 og MBA-námi frá Háskólanum í Reykjavík árið 2018.

Á ferli sínum hefur hann setið í ýmsum nefndum og vinnuhópum tengdum siglingaöryggi, öryggis- og varnarmálum og öðrum tengdum verkefnum á Norðurslóðum, þar á meðal Arctic Coast Guard Forum, Arctic Security Forces Roundtable og ARCSAR, og sinnt verkefnum á því sviði. Hann hefur stjórnað ýmsum verkefnum tengdum eftirliti á sjó og endurnýjun búnaðar Landhelgisgæslunnar, þar á meðal endurnýjun flugfara 2007-2009 og endurnýjun skipa og báta árið 2021. Verkefnastjórnun vegna þátttöku flugvélar og sjófara Landhelgisgæslunnar í sameiginlega Frontex-verkefninu við Miðjarðarhaf.



Norðurslóðir sem áhættutilraunastofa Evrópu: Tvíþættir innviðir og stefnumótandi ákvarðanataka í óvissu

Sóley Kaldal er áhættustýringar- og öryggisverkfræðingur sem einnig er með meistaragráðu í framhaldsnámi með áherslu á alþjóðlegt öryggi frá Yale, Jackson School of Global Affairs. Sóley starfaði fyrir íslensk stjórnvöld í tvo áratugi, fyrst sem fræðilegur rannsakandi, síðan sem sérfræðingur og stefnumótunarráðgjafi hjá Landhelgisgæslu Íslands og nú síðast sem aðalsamningamaður um alþjóðasamninga fyrir utanríkisráðuneytið. Hún starfar nú við innri endurskoðun og rekstrarþol hjá Landsbankanum, stærsta viðskiptabanka Íslands.

Pallborðsstjórnandi - seinna pallborð

Dr. Magnús Árni Skjöld Magnússon (f. 1968, Orcid: https://orcid.org/0000-0003-1335-3254) er dósent við Háskólann á Bifröst og hefur gegnt störfum deildarforseta félagsvísinda- og lagadeildar og rektors Háskólans á Bifröst. Hann er með doktorsgráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands, MPhil í Evrópufræðum frá Cambridge-háskóla og M.Mus. í tónsmíðum frá Listaháskóla Íslands. Hann hefur starfað sem pólitískur ráðgjafi fyrir NATO í Kabúl og matsaðili fyrir Erasmus+ á vegum Evrópusambandsins. Hann hefur átt sæti á alþingi og starfað við stjórnsýslu, rannsóknir, ráðgjöf og kennslu bæði á Íslandi og erlendis. Magnús hefur skrifað bækur og greinar um íslensk stjórnmál, evrópuvæðingu, efnahagsmál og öryggismál. 

Viðburðurinn fer að mestu fram á íslensku og verður honum jafnframt streymt í beinni útsendingu á vef Háskólans á Bifröst. Við hvetjum allt áhugafólk um málefnið til að taka þátt.

Dagskrá ráðstefnunnar má finna hér. 

Skráning fer fram hér