Norrænar allsherjarvarnir og Ísland til umræðu í Norræna húsinu
28. ágúst 2026

Norrænar allsherjarvarnir og Ísland til umræðu í Norræna húsinu

Hvernig getur Ísland nýtt reynslu Finna og Svía af allsherjarvörnum til að efla viðbúnað og viðnámsþrótt samfélagsins? Þeirri spurningu verður varpað fram á málstofu Háskólans á Bifröst í Norræna húsinu þann 17. september, þar sem íslenskir og erlendir sérfræðingar fjalla um allsherjarvarnir og mögulegt gildi norrænnar nálgunar fyrir Ísland.

Svíþjóð og Finnland hafa um árabil byggt upp öflug kerfi til að tryggja öryggi og virkni samfélagsins þegar áföll eða krísur dynja yfir. Í Svíþjóð er hugmyndin um allsherjarvarnir (Total Defence) lykilþáttur í þessari nálgun, þar sem varnir landsins eru ekki eingöngu verkefni hersins heldur byggjast á samspili stjórnvalda, borgaralegra stofnana, atvinnulífs og samfélagsins alls. Í Finnlandi gegnir sambærileg nálgun, meðal annars undir merkjum heildstæðs öryggis (Comprehensive Security), mikilvægu hlutverki.

Slík nálgun snýst ekki aðeins um hefðbundnar hernaðarógnir. Hún nær einnig til þess hvernig samfélög verja mikilvæga innviði, fjarskipti, orku- og upplýsingakerfi, tryggja aðfangakeðjur og byggja upp viðnámsþrótt gagnvart fjölbreyttum áföllum og ógnum.

Á málstofunni verður sjónum beint að reynslu Norðurlandanna og þeirri spurningu hvort og hvernig hún geti nýst Íslandi.

Meðal frummælenda er dr. Veronica Anghel, stjórnmálafræðingur við European University Institute, sem vinnur nú að bókinni Total Defence: An EU Grand Strategy for the 21st Century. Rannsóknir hennar beinast meðal annars að allsherjarvörnum og mögulegu hlutverki þeirra í víðtækari evrópskri öryggisstefnu. Hún er jafnframt ritstjóri árlegrar skýrslu Global Risks to the EU, sem gefin er út af European Union Institute for Security Studies.

Frá Finnlandi tekur þátt Axel Hagelstam, forstöðumaður alþjóðamála og greiningar hjá Viðbúnaðarstofnun Finnlands (National Emergency Supply Agency, NESA), einni af lykilstofnunum finnska viðbúnaðar- og afhendingaröryggiskerfisins. Hagelstam hefur víðtæka reynslu af öryggis- og viðbúnaðarmálum í Finnlandi og á vettvangi ESB og NATO. Hann mun fjalla um hvernig finnska kerfið virkar í framkvæmd og hvernig stjórnvöld, atvinnulíf og samfélag vinna saman að því að tryggja virkni samfélagsins á tímum áfalla.

Frá Svíþjóð tekur þátt Jan Lundin, verðandi sendiherra Svíþjóðar á Íslandi. Lundin á að baki áratuga feril í sænsku utanríkisþjónustunni, meðal annars sem sendiherra Svíþjóðar í Serbíu og framkvæmdastjóri skrifstofu Council of the Baltic Sea States. Hann mun fjalla um allsherjarvarnir frá sjónarhóli sænskrar utanríkis- og öryggisstefnu.

Síðasta erindið flytur Jóhann B. Skúlason, aðstoðaryfirlögregluþjónn á Almannavarnasviði ríkislögreglustjóra. Jóhann hefur víðtæka reynslu af almannavörnum, viðbragði og samhæfingu og gegndi meðal annars lykilhlutverki við stjórnun smitrakningarteymis almannavarna og sóttvarnalæknis í COVID-19-faraldrinum. Árið 2022 hlaut hann Stjórnunarverðlaun Stjórnvísi fyrir störf sín við krefjandi aðstæður. Hann hefur jafnframt komið að fjölbreyttum verkefnum á sviði viðbúnaðar og almannavarna. Jóhann mun koma með íslenskt sjónarhorn inn í umræðuna um viðbúnað, viðnámsþrótt og allsherjarvarnir.

Málstofan er hluti af Jean Monnet Chair verkefninu Iceland’s Strategic Role in Arctic and European Security (ISARCEUR) við Háskólann á Bifröst, sem dr. Magnús Skjöld prófessor leiðir. Hún er haldin í samstarfi við sendiráð Svíþjóðar og Finnlands á Íslandi.

Fylgstu með viðburðinum á Facebook

Málstofan er öllum opin en nauðsynlegt er að skrá sig hér:
Total Defence and Comprehensive Security – skráning

📍 Norræna húsið
📅 17. september 2026
🕤 9:30–12:00
🌐 Málstofan fer fram á ensku
🎟️ Ókeypis aðgangur – öll velkomin