Kall eftir greinum: Öryggi og jaðarsvæði Evrópu
Magnús Skjöld, prófessor við Háskólann á Bifröst, er einn af ritstjórum nýs sérheftis í alþjóðlega ritrýnda tímaritinu Frontiers in Political Science. Sérheftið ber heitið Peripheral Frontiers: Security, Vulnerability, and Geopolitical Agency at Europe’s Edges og er hluti af Jean Monnet Chair rannsóknarverkefni Magnúsar.
Kallað er eftir fræðigreinum í sérheftið sem byggir á rannsóknum á jaðarsvæðum Evrópu, þar sem öryggisógnir, geopólitísk spenna og stefnumótandi áskoranir koma oft fyrst fram og með sérstökum hætti. Þar má nefna Norðurslóðir og Norður-Atlantshaf, Svartahafssvæðið, Vestur-Balkanskaga og önnur svæði á jaðri evrópskrar öryggis- og utanríkisstefnu.
Sérstaklega er kallað er eftir efni frá fræðimönnum og starfandi sérfræðingum sem vinna að rannsóknum á smáríkjum, hybrid-ógnum, innviðaöryggi, aðgreindri samþættingu, bandalagsstjórnmálum og tengdum viðfangsefnum. Sérheftið er ætlað fræðimönnum jafnt sem sérfræðingum og starfandi fagfólki á sviði alþjóðasamskipta, stjórnmálafræði, öryggisfræða og evrópskra mála.
Skilafrestir:
-
Útdrættir (abstract): 5. maí 2026
-
Lokaskil: 23. ágúst 2026
Nánari upplýsingar um sérheftið, áherslur þess og leiðbeiningar um innsendingar má finna á vef tímaritsins.
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta