Háskólinn á Bifröst - Háskóli í heimabyggð
23. apríl 2026Kynningarfundir á námi við Háskólann á Bifröst
Viltu vita meira um háskólanám? Frá 13. apríl til 11. maí kynnir Háskólinn á Bifröst námslínur skólans á opnum fjarfundum á Zoom og Facebook. Fundirnir fara fram í hádeginu og hefjast klukkan 12.00. Fagstjórar fara yfir inntak námsins, áherslur og skipulag. Opið verður fyrir spurningar. Við hvetjum áhugasama til að koma á fundina og spjalla við fagstjóra um námið.
Dagskrá fundanna
-
14. apríl: MCM menningarstjórnun – Njörður Sigurjónsson
-
15. apríl: BA skapandi greinar – Anna Hildur Hildibrandsdóttir
-
20. apríl: BS viðskiptalögfræði – Unnar Steinn Bjarndal
-
21. apríl: BA Miðlun og almannatengsl – Andrea Guðmundsdóttir
-
22. apríl: BS Stjórnun í verslun og þjónustu – Edda Blumenstein
-
27. apríl: MSc og MLM forysta og verkefnastjórnun – Sigurður Blöndal
-
28. apríl: Verkefnastjórnun (BSc) – Sigurður Blöndal
-
29. apríl: MS-MLM Forysta og stjórnun – Rakel Heiðmarsdóttir
-
30. apríl kl. 12:00: Háskólagátt – Guðrún Rannveig Stefánsdóttir
- 30. apríl kl. 14:00: Markaðsfræði (MS/MMM) – Brynjar Þór Þorsteinson
-
4. maí: BS Markaðsfræði – Ragnar Már Vilhjálmsson
- 5. maí kl. 12:00: Stjórnvísindi – Magnús Skjöld
-
5. maí kl. 10:30: MBL Viðskiptalögfræði - Elín H. Jónsdóttir
-
6. maí: Fjármálastjórnun (BSc) – Erlendur I. Jónsson
-
7. maí: Fjármálastjórnun (MSc) – Erlendur I. Jónsson
-
11. maí: MA Samskiptastjórnun – Eiríkur Bergmann
- 12. maí: BS Viðskiptafræði - Bryndís Ásbjarnardóttir
-
13. maí: Örnám lagadeildar - Elín H. Jónsdóttir
- 14. maí: Örnám Frumkvöðlastarf/Entrepreneurship - Anna Hildur Hildibrandsdóttir
Um námið
Nám á Bifröst er sveigjanlegt fjarnám sem er kennt í 7 vikna lotum. Nemendur mæta í staðlotur tvisvar á önn til að hitta kennara og samnemendur.
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta