BS nám í viðskiptafræði með áherslu á fjármálastjórnun er sérhæft viðskiptanám, sniðið að þörfum þeirra sem vilja auka við þekkingu sína, leikni og hæfni á sviði fjármála.
Nám í viðskiptafræði með áherslu á fjármálastjórnun er ein af sjö mögulegum leiðum til sérhæfingar í námi, en nemandi getur valið um allt að tvær áherslur í BS námi sínu.
Námið er sérstaklega sniðið að þörfum þeirra, sem starfa eða stefna að því að starfa hjá fjármáladeildum fyrirtækja, stofnana eða annarra skipulagsheilda. Þá er lögð áhersla á sérhæfða þekkingu og færni í fjármálastjórnun með hliðsjón af nýjustu þróun á fjármálamörkuðum.
Sérstök áhersla er einnig lögð á, að nemendur öðlist reynslu og hæfni til þess að nýta þekkingu sína á hagnýtan hátt. Kennarar eru sérfræðingar á sviði fjármála og með mikla reynslu.
Sérhæfing kemur fram í eftirfarandi skyldunámskeiðum:
- Kostnaðarbókhald
- Fjármál II
- Stjórnunarbókhald
- Fjármál og fjármálamarkaðir
-
Inntökuskilyrði
Til að geta innritast í námið þurfa nemendur að hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegri menntun t.d. úr Háskólagátt Háskólans á Bifröst.
-
Umsóknarfrestur
Framlengdur umsóknarfrestur fyrir haustönn 2023 er til og með 5.júní.