Fréttir og tilkynningar

Kynning á Gullegginu 2017 25. nóvember 2016

Kynning á Gullegginu 2017

Háskólinn á Bifröst er þátttakandi í Gullegginu og var nýverið haldin kynning við Háskólann á Bifröst á Gullegginu 2017. Það er Icelandic Startups sem stendur fyrir hinni árlegu frumkvöðlakeppni en meginmarkmið hennar er að skapa vettvang fyrir ungt athafnafólk til að öðlast þjálfun og reynslu í mótun nýrra viðskiptahugmynda og rekstri fyrirtækja.

Lesa meira
Sérhæft meistaranám í viðskiptalögfræði 24. nóvember 2016

Sérhæft meistaranám í viðskiptalögfræði

Háskólinn á Bifröst býður hagnýtt og krefjandi MBL nám í viðskiptalögfræði sem hefst nú í janúar.Námið er hið eina sinnar tegundar á Íslandi en MBL stendur fyrir Master in business law.

Lesa meira
Upplifun kvenna í forystu í fjármálageiranum á Íslandi skoðuð í meistararitgerð 17. nóvember 2016

Upplifun kvenna í forystu í fjármálageiranum á Íslandi skoðuð í meistararitgerð

„Hvernig upp­lifa kon­ur í for­ystu í fjár­mála­geir­an­um á Íslandi hlut­verk sitt og stöðu sem kven­leiðtog­ar þar sem karl­menn eru í meiri­hluta.“ Þannig hljóðar rannsóknarspurning Dagnýjar Jónsdóttur, sem útskrifaðist með MS gráðu í Forystu og stjórnun frá Háskólanum á Bifröst nú í vor. Meistaraverkefni Dagnýjar hefur varkið athygli og flutti hún m.a nýverið erindi því tengdu á Þjóðarspegli Háskóla Íslands.

Lesa meira
Hagsmunir nemenda í forgangi 11. nóvember 2016

Hagsmunir nemenda í forgangi

Rektorar allra íslensku háskólanna skora á verðandi ríkisstjórn og nýkjörna þingmenn að hækka framlög til háskólanna að lágmarki um tvo milljarða króna árlega á næstu árum.

Lesa meira
Gæðadagur Háskólans á Bifröst undirstrikar að gæðamál háskóla eru í stöðugri þróun 9. nóvember 2016

Gæðadagur Háskólans á Bifröst undirstrikar að gæðamál háskóla eru í stöðugri þróun

Gæðadagur Háskólans á Bifröst var haldinn nú í vikunni. Fyrirlestrar um næstu skref í gæðamálum íslenskra háskóla vógu þungt í dagskránni auk umfjöllunar um gæðaverkefni sem Háskólinn á Bifröst beitir sér fyrir um þessar mundir. Ólafur Ísleifsson, gæðastjóri Háskólans á Bifröst, segir daginn mikilvægt nýmæli í gæðastarfi Háskólans á Bifröst

Lesa meira
Aukin áhersla á góða leiðtoga í nýafstöðnum kosningum 4. nóvember 2016

Aukin áhersla á góða leiðtoga í nýafstöðnum kosningum

Sigurður Ragnarsson, forseti Viðskiptadeildar, var í viðtali á Bylgjunni í Reykjavík síðdegis og ræddi um forystu og leiðtogafræði í tengslum við nýafstaðnar kosningar. Komið er inná margt í viðtalinu, m.a. er rætt um Bjarna Benediktsson og Katrínu Jakobsdóttur og almennt um hvað sé góður leiðtogi.

Lesa meira
Viðskiptafræðinám á Bifröst frábær undirbúningur 31. október 2016

Viðskiptafræðinám á Bifröst frábær undirbúningur

Húni Jóhannesson, stundakennari við viðskiptadeild Háskólans á Bifröst, útskrifaðist nýverið úr meistarnámi í fjármálum fyrirtækja frá Háskóla Íslands. Hann varð í hópi þeirra 10% útskrifaðra sem hlotið hafa hæstu einkunn frá árinu 2008 en Húni hlaut 9 í einkunn fyrir ritgerð sína. Vitnað er í ritgerð Húna í Viðskiptablaðinu og má nálgast greinina hér

Lesa meira
Málstofa um ferðaþjónustu á tímamótum 26. október 2016

Málstofa um ferðaþjónustu á tímamótum

Ferðaþjónusta á tímamótum - klasar og sviðsmyndir er yfirskrift málstofu um ferðaþjónustu sem haldin er af Klasasetri Íslands í samstarfi við Háskólann á Akureyri, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Háskóla Íslands og Háskólann á Bifröst.

Lesa meira
Farsælt samstarf við Rúmenska háskóla 25. október 2016

Farsælt samstarf við Rúmenska háskóla

Karl Eiríksson, alþjóðafulltrúi Háskólans á Bifröst, heimsótti fjóra samstarfsskóla háskólans í Rúmeníu nú fyrr í haust. Þangað fór Karl með það að markmiði að kynna sér starfið í háskólunum þar ytra og um leið að kynna fyrir rúmenskum háskólanemum Alþjóðlega Sumarskólann við Háskólann á Bifröst.

Lesa meira