Ráðstefna - Nýjar áskoranir í öryggismálum: Norðurslóðir og ytri mörk Evrópu
Miðvikudaginn 13. maí 2026 stendur Félagsvísindadeild Háskólans á Bifröst fyrir alþjóðlegri ráðstefnu í Norræna húsinu í Reykjavík kl. 9:00–16:00 undir heitinu Nýjar áskoranir í öryggismálum: Norðurslóðir og ytri mörk Evrópu - Svæðisbundnar áskoranir, hernaðarleg viðbrögð og nýtt hlutverk Evrópu í breyttri heimsmynd.
Ráðstefnan er haldin undir merkjum Jean Monnet Chair verkefnisins Iceland’s Strategic Role in Arctic and European Security (ISARCEUR) við Háskólann á Bifröst, í samstarfi við sendiráð Póllands, Frakklands, Bandaríkjanna og Evrópusambandsins á Íslandi.
Á síðustu árum hafa öryggismál Evrópu tekið miklum breytingum. Innrás Rússlands í Úkraínu hefur umbreytt öryggisumhverfi álfunnar og aukið mikilvægi jaðarsvæða Evrópu, þar á meðal Norðurslóða og Norður-Atlantshafsins. Á sama tíma hafa fjölþáttaógnir, stafrænir innviðir, orkuskipti og aukin hernaðarleg viðvera stórvelda á norðurslóðum skapað nýjar áskoranir fyrir Evrópuríki og bandalög þeirra. Meðal þess sem verður til umræðu er:
- Breytt öryggislandslag Evrópu
- Hlutverk NATO og Evrópusambandsins
- Vaxandi mikilvægi Norðurslóða
- Fjölþáttaógnir og vernd mikilvægra innviða
- Hlutverk jaðarsvæða í evrópskri öryggisstefnu
Ráðstefnustjóri er Dr. Magnús Árni Skjöld Magnússon prófessor og Jean Monnet Chair. Dr. Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, rektor Háskólans á Bifröst setur ráðstefnuna og flytur ávarp.
Ráðstefnan mun leiða saman fræðimenn, diplómata, sérfræðinga í öryggismálum og stefnumótendur frá Evrópu og Norður-Ameríku.
Fyrirlesarar eru:
Dr. Victoria Vdovychenko, University of Cambridge
Úkraína og umbreyting evrópskra öryggismála
Ukraine and the Transformation of European Security
Ms. Clara Ganslandt, sendiherra Evrópusambandsins á Íslandi
Öryggisstefna Evrópusambandsins og norðurslóðir
EU Security Policy and the Northern Dimension
Dr. Gregory Falco, Cornell University / Háskólinn á Bifröst
Fjölþáttaógnir, tækni og mikilvægir innviðir
Hybrid Threats, Technology, and Strategic Infrastructure
Mr. Antoine Michon, fulltrúi franska Utanríkis- og Evrópumálaráðuneytisins
Sjálfstæði Evrópu til stefnumótunar og þátttaka á norðurslóðum: frá frönsku sjónarhorni
European Strategic Autonomy and Arctic Engagement: A French Perspective
Mr. Aleksander Kropiwnicki, sendiherra Póllands á Íslandi
Austur-Evrópa, NATO og tengingin við norðurslóðir
Eastern Europe, NATO, and the Arctic Connection
Auðunn Kristinsson, framkvæmdastjóri sviðs stefnumótunar, þróunar aðgerða og siglingasviðs LHG
Áherslur og verkefni Landhelgisgæslunnar á sviði öryggismála í Norður-Atlantshafi
Main Emphasis and Tasks of the Icelandic Coast Guard in the Field of Security in the North Atlantic
Ms. Rebecca Doffing, eftirlitsfulltrúi norðurslóða, bandaríska sendiráðið í Reykjavík
(Titill á erindi tilkynntur síðar - Title to be announced later)
Sóley Kaldal, áhættustýringar- og öryggisverkfræðingur
Norðurslóðir sem áhættutilraunastofa Evrópu: tvíþættir innviðir og stefnumótandi ákvarðanataka í óvissu
The Arctic as Europe’s Risk Laboratory: Dual-Use Infrastructure and Strategic Decision-Making Under Uncertainty
Ráðstefnan fer að mestu fram á ensku. Athugið að takmarkaður sætafjöldi er í boði, en einnig verður hægt að fylgjast með í beinu streymi.
Frítt er inn á ráðstefnuna. Verið velkomin!
Frekari upplýsingar og dagskrá má finna á vefsíðu ráðstefnunnar.
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta