Vorið á myndlistarmarkaðnum?  

24. mars 2023

Vorið á myndlistarmarkaðnum?

Laugardaginn 1. apríl standa Háskólinn á Bifröst og Listasafn Reykjavíkur fyrir málstofu um þróun og horfur á íslenskum myndlistarmarkaði. Segja má að tilefnið sé ærið, en markmiðið er að ræða spurningar sem vaknað hafa á síðustu misserum, meðal annars um fjölgun gallería og söluaðila myndlistar og hvort heimsfaraldurinn hafi mögulega haft góð áhrif á listviðskipti.

Kári Finnsson, listfræðingur og hagfræðingur, fjallar um stöðu listmarkaðarins og þróun síðastliðin ár í alþjóðlegu samhengi og ber saman við þróun markaðarins hér á landi. Á eftir erindi Kára ræða hann og Ingibjörg Jónsdóttir, eigandi gallerísins BERG Contemporary, svo um stöðu myndlistar og myndlistarmarkaðarins.

Vísbendingar eru um að markaður með myndlist hafi eflst á Íslandi á síðustu misserum. Met hefur nýlega verið slegið á íslenskum uppoðsmarkaði og hermt er að eftirspurn hafi aukist í Covid-19 faraldrinum. Þá kemur fram í drögum að nýrri myndlistarstefnu að stefnt sé að 2-4% vexti í heildarveltu greinarinnar á ári fram til ársins 2030.

Erfitt hefur þó reynst hingað til að kortleggja umfang íslenska myndlistarmarkaðarins því að skortur á rannsóknum og opinberum hagtölum kemur í veg fyrir að hægt sé að segja með vissu hver staðan er. Er aukin sýningarstarfsemi og fjölgun gallería til marks um sterkari markað með myndlist á Íslandi? Hvernig er hægt að auka umsvif á íslenska myndlistarmarkaðnum og hvað þarf til svo að markaður með myndlist geti talist öflugur? 

Fundarstjóri er Njörður Sigurjónsson, prófessor í menningarstjórnun við Háskólann á Bifröst.

Málstofan er öllum opin og er haldin á Kjarvalsstöðum, en þeir eiga einmitt 50 ára afmæli um þessar mundir. Hún fer fram laugardaginn 1. apríl nk., kl. 11:00 til 12:30 og eru áhugasamir beðnir um að skrá sig hér. Jafnframt verður sreymt beint frá málstofunni hér

Málstofur í menningarstjórnun eru samstarfsverkefni Listasafns Reykjavíkur og Háskólans á Bifröst.

Hvers vegna að velja Bifröst?

  1. Í fararbroddi í fjarnámi
  2. Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
  3. Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
  4. Sterk tengsl við atvinnulífið
  5. Persónuleg þjónusta