1. apríl 2023
Vorið á myndlistarmarkaðnum?
Á málstofu um íslenska myndlistarmarkaðinn fjallar Kári Finnsson, listfræðingur og hagfræðingur um stöðu listmarkaðarins og þróun síðastliðin ár í alþjóðlegu samhengi og ber saman við þróun markaðarins hér á landi.
Á eftir erindi Kára ræða hann og Ingibjörg Jónsdóttir, eigandi gallerísins BERG Contemporary, um stöðu myndlistar og myndlistarmarkaðarins.
Málstofan fer fram á Kjarvalsstöðum, laugardaginn 1. apríl, kl. 11:00 til 12:30 og verður henni jafnframt streymt á samfélagsmiðlum og hér á vef Háskólans á Bifröst. Fundarstjóri er Njörður Sigurjónsson, prófessor í menningarstjórnun við Háskólann á Bifröst.
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta