Skólastarfið að hefjast að nýju
Skólastarfið við Háskólann á Bifröst er að hefjast að nýju eftir sumarleyfi og undirbúningur fyrir haustönn er í fullum gangi. Háskólagátt hefur þegar hafið starfsemi sína og fram undan eru nýnemadagur grunn- og meistaranema og upphaf kennslu mánudaginn 24. ágúst.
Nýnemadagur Háskólagáttar á Hvanneyri
Nýnemadagur Háskólagáttar var haldinn á Hvanneyri mánudaginn 10. ágúst. Þar kom hópur nýnema saman og fékk kynningu á starfsemi skólans og þeirri þjónustu sem nemendum stendur til boða á námstímanum. Í kjölfarið hófst forlota Háskólagáttar og þar með er skólastarfið á haustönn komið af stað.
Næst er komið að nýnemum í grunn- og meistaranámi. Nýnemadagur þeirra verður haldinn föstudaginn 21. ágúst kl. 10:00 í Menntaskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi.
Háskólinn á Bifröst er fjarnámsháskóli en leggur jafnframt áherslu á að skapa tækifæri fyrir nemendur til að hittast og mynda tengsl. Nýnemadagurinn er því tækifæri fyrir nýja nemendur til að kynnast samnemendum og starfsfólki skólans og fá góða innsýn í námið og það sem fram undan er.
Á nýnemadeginum fá nemendur meðal annars kynningu á þjónustu við nemendur, bókasafni, náms- og starfsráðgjöf og helstu kerfum skólans. Einnig verður fjallað um það að vera fjarnemi við Háskólann á Bifröst, OpenEU kynnt og Nemendafélag Háskólans á Bifröst segir frá starfsemi sinni.
Nemendur fá jafnframt tækifæri til að hitta deildarforseta og fagstjóra sinna deilda og boðið verður upp á samhristing fyrir bæði grunn- og meistaranema.
Kennsla á haustönn hefst mánudaginn 24. ágúst.
Við Háskólann á Bifröst ríkir tilhlökkun fyrir nýju skólaári. Við bjóðum nýja nemendur hjartanlega velkomna. Einnig óskum við öllum nemendum og starfsfólki góðs gengis á komandi haustönn.
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta