21. ágúst 2026

Nýnemadagur grunn- og meistaranema 2026

Nýnemadagur grunn- og meistaranema Háskólans á Bifröst verður haldinn 21. ágúst og hefst kl. 10:00 í Hjálmakletti í Borgarnesi.

Á nýnemadeginum eru nýir nemendur boðnir velkomnir í Háskólann á Bifröst og þeim gefið tækifæri til að kynnast starfsfólki og þjónustunni sem þeim stendur til boða. Nemendur fá innsýn í fyrirkomulag námsins og kennslukerfin - sem og nauðsynlegar upplýsingar um prófareglur, námsráðgjöf, bókasafn, tölvukerfi og fleira.

Nýnemadagurinn er tilvalinn til að hitta samnemendur, kennara og annað starfsfólk  og reynslan sýnir að þátttaka á nýnemadögum hjálpar nýnemum að komast hraðar inn í námið og fyrirkomulag þess.

Dagská nýnemadags 

10:00             Skólasetning  - Dr. Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

10:10             Þjónusta við nemendur - Sólveig Hallsteinsdóttir

10:20             Þjónusta bókasafnsins og leitir.is - Rósa S. Jónsdóttir

10:25             Náms og starfsráðgjöf - Að hverju þarf að huga í fjarnámi? - Helga Rós Einarsdóttir og Unnur Símonardóttir  

10:35             Kerfin og annað hagnýtt - Upplýsingatæknisvið

10:45             Kaffi

11:00             Grunnnemar: Samhristingur – Agnar Jón

                     Meistaranemar:  Nemendum skipt í hópa eftir deildum þar sem deildarforsetar taka á móti nemendum

  • Félagsvísindadeild – Dr. Bergsveinn Þórsson
  • Lagadeild - Dr. Haukur Logi Karlsson
  • Viðskiptadeild – Dr. Rakel Heiðmarsdóttir

12:30             HLÉ

13:00             Að vera fjarnemi við Háskólann á Bifröst

13:10             Kynning á OpenEU - Susanne Miriam Arthur

13:20             Nemendafélag Háskólans á Bifröst kynnir starfsemi félagsins

13:30             Meistaranemar: Samhristingur – Agnar Jón
                     Grunnnemar:  Nemendum skipt í hópa eftir deildum þar sem deildarforsetar taka á móti nemendum

  • Félagsvísindadeild – Dr. Bergsveinn Þórsson
  • Lagadeild - Dr. Haukur Logi Karlsson
  • Viðskiptadeild – Dr. Rakel Heiðmarsdóttir

15:00             Lok nýnemadags