Ósanngjarnar kröfur um samskiptahæfni
4. júní 2025

Ósanngjarnar kröfur um samskiptahæfni

Bjarney Bjarnadóttir framkvæmdastjóri UMSB og formaður þroskahjálpar á Vesturlandi og nemandi okkar í meistaranámi í mannauðsstjórnun var í viðtali í útvarpsþættinum Samfélagið. Þar ræddi hún áhugaverðar niðurstöður lokaverkefnis síns í náminu Þar sem hún fjallaði um kröfur um samskiptahæfni og lipurð í samskiptum í atvinnuauglýsingum og hve útilokandi þessi krafa getur verið fyrir ákveðna hópa í samfélaginu eins og einhverfa. Einnig var viðtal við hana í Heimildinni um sama málefni. Það má því segja að lokaverkefnið hennar og niðurstöður þess hafi vakið athygli í samfélaginu. 

Hlusta frá 2:36 mínútu