Nýtt meistaranám í forystu og gervigreind
Háskólinn á Bifröst kynnir nýtt meistaranám í forystu og gervigreind við viðskiptadeild skólans. Námið hefst á vorönn 2027 og er ætlað stjórnendum, sérfræðingum og öðrum sem vilja öðlast þekkingu og færni til að leiða innleiðingu og nýtingu gervigreindar hjá fyrirtækjum og stofnunum. Ekki er gerð krafa um tæknilegan bakgrunn.
Gervigreind hefur á undanförnum árum orðið sífellt stærri þáttur í starfsemi fyrirtækja og stofnana. Með aukinni notkun tækninnar vakna nýjar spurningar um stjórnun, ábyrgð, ákvarðanatöku og breytingar á vinnustöðum. Nýja námið, forysta og gervigreind, er þróað til að mæta þessum áskorunum og undirbúa fólk undir að leiða breytingar sem fylgja aukinni nýtingu gervigreindar.
„Fyrirtæki og stofnanir standa frammi fyrir því að gervigreind er að breyta því hvernig unnið er og spurningin er hver ætlar að leiða þessa umbreytingu innan skipulagsheilda. Það sem vantar eru leiðtogar sem skilja bæði tæknina og fólkið og geta tekið ábyrgar ákvarðanir. Það er nákvæmlega þetta sem námsleiðin á að skila út í atvinnulífið,“ segir Dr. Hanna Kristín Skaftadóttir, dósent og fagstjóri þessa nýja náms.
Forysta og ábyrg nýting gervigreindar í fyrirrúmi
Námið sameinar traustan fræðilegan grunn í leiðtogafræðum og hagnýta þekkingu á nýtingu gervigreindar við stjórnun og í starfsemi skipulagsheilda. Áhersla er lögð á að nemendur öðlist skilning á möguleikum og takmörkunum tækninnar og geti tekið upplýstar ákvarðanir um innleiðingu hennar.
Meðal viðfangsefna eru gervigreind, sjálfvirknivæðing, erindrekar (e. agentic AI), siðfræði og stjórnarhættir gervigreindar, netöryggi, gagnagreining og gagnastýring. Einnig er fjallað um nýsköpun og stafræna viðskiptahætti, auk leiðtogafræðinámskeiða um stefnumótun og framtíðarsýn og kenningar í leiðtogafræðum.
Námið er ekki hefðbundið forritunarnám heldur er sjónum beint að því hvernig stjórnendur og sérfræðingar geta nýtt gervigreind á ábyrgan og árangursríkan hátt, þróað verkferla og leitt breytingar innan skipulagsheilda.
Nám fyrir fólk með fjölbreyttan bakgrunn
Námsleiðin er ætluð fólki með fjölbreytta menntun og starfsbakgrunn. Hún hentar meðal annars stjórnendum, millistjórnendum, sérfræðingum og starfsfólki fyrirtækja og hjá opinberum stofnunum sem vill efla þekkingu sína á gervigreind og nýtingu hennar.
Ekki er nauðsynlegt að hafa bakgrunn í tölvunarfræði eða forritun til að stunda námið. Áherslan er á að byggja upp þekkingu og færni sem nýtist við stefnumótun, stjórnun og ábyrga innleiðingu gervigreindar á fjölbreyttum starfsvettvangi.
Námið er 90 ECTS-einingar og boðið upp á tvær námsleiðir. Annars vegar er MS-gráða með 30 eininga lokaritgerð og hins vegar MLM-gráða án lokaritgerðar. Námið er lotubundið fjarnám sem hentar þeim sem vilja stunda nám samhliða starfi. Hluti námskeiða verður kenndur á ensku og munu gestakennarar frá virtum erlendum háskólum koma að kennslunni. Nánari upplýsingar um gestakennarana verða kynntar síðar.
Byggir á reynslu af kennslu gervigreindar frá 2018
Gervigreind í viðskiptum er ekki nýtt viðfangsefni við Háskólann á Bifröst. Frá árinu 2018 hefur skólinn boðið upp á nám í viðskiptagreind á grunnstigi þar sem gervigreind hefur verið hluti af viðfangsefninu.
Með nýju meistaranámsleiðinni er byggt áfram á þeirri reynslu og þekkingu sem hefur þróast innan skólans á undanförnum árum. Námið færir áhersluna á gervigreind í viðskiptum yfir á meistaranámsstig þar sem forysta, leiðtogafræði og ábyrg innleiðing tækninnar er í forgrunni.
Fagstjóri námsins hefur víðtæka reynslu af rannsóknum á gervigreind
Dr. Hanna Kristín Skaftadóttir leiðir uppbyggingu námslínunnar. Hún er dósent og fagstjóri við Háskólann á Bifröst og lauk doktorsprófi frá Háskóla Íslands þar sem hún rannsakaði gervigreind og sjálfvirknivæðingu ferla í viðskiptum.
Hanna Kristín hefur um árabil rannsakað innleiðingu gervigreindar í fyrirtækjum og tekur virkan þátt í alþjóðlegu samstarfi á sviðinu. Hún situr fyrir hönd Íslands í evrópsku staðlanefndinni JTC21 um gervigreind og hefur tekið þátt í evrópskum rannsóknarverkefnum sem tengjast þróun og nýtingu tækninnar.
Umsóknir um nám á vorönn 2027
Fyrstu nemendur í forystu og gervigreind hefja nám á vorönn 2027. Fjöldi nemenda er takmarkaður og verða að hámarki 50 nemendur teknir inn á fyrstu önn námsins.
Nánari upplýsingar um námið, inntökuskilyrði og umsóknir má finna á vefsíðu námsins.
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta