Meistaranám í forystu og gervigreind er nýtt 90 eininga fjarnám við Háskólann á Bifröst sem hefst á vorönn 2027. Námið sameinar fræðilegan grunn í leiðtogafræðum og hagnýta þekkingu á nýtingu gervigreindar við stjórnun og í starfsemi skipulagsheilda.
Námið er ætlað þeim sem vilja öðlast þekkingu og færni til að nýta gervigreind á ábyrgan hátt, leiða breytingar innan fyrirtækja og stofnana og taka upplýstar ákvarðanir um innleiðingu og notkun tækninnar.
Hvað lærir þú?
Í náminu öðlast nemendur skilning á því hvernig gervigreind, sjálfvirkni og erindrekar (e. agentic AI) virka og hvernig nýta má tæknina til að þróa og bæta verkferla.
Helstu áherslur námsins eru:
- Leiðtogafræði og forysta á tímum gervigreindar
- Innleiðing gervigreindar í fyrirtækjum og stofnunum
- Siðfræði og stjórnarhættir gervigreindar
- Gagnagreining og gagnastýring
- Netöryggi tengt gervigreind
- Nýsköpun og stafrænir viðskiptahættir
Áhersla er lögð á að nemendur geti metið tækifæri og áhættu sem fylgja gervigreind, byggt ákvarðanir á fræðilegum forsendum og nýtt þekkinguna í eigin starfsumhverfi.
Fyrir hverja er námið?
Námið hentar fólki með fjölbreytta menntun og starfsbakgrunn sem vill efla þekkingu sína og færni í nýtingu gervigreindar og taka forystu í stafrænni umbreytingu á sínum vinnustað. Það er meðal annars ætlað stjórnendum, sérfræðingum og öðrum sem starfa í atvinnulífinu, hjá opinberum stofnunum eða á sviði ráðgjafar.
Ekki er nauðsynlegt að hafa tæknilegan bakgrunn til að stunda námið. Áhersla er lögð á að nemendur geti byggt á fyrri þekkingu sinni og starfsreynslu og öðlast færni til að nýta gervigreind af öryggi og ábyrgð í fjölbreyttu starfsumhverfi.
Skipulag námsins
Námið er 90 ECTS-einingar og kennt í fjarnámi. Boðið er upp á tvær námsleiðir:
- MLM-gráða: Meistaranám án lokaritgerðar.
- MS-gráða: Meistaranám með lokaritgerð sem veitir meðal annars góðan undirbúning fyrir frekara nám og rannsóknir.
Hluti námskeiða eru kennd á ensku og námið byggir á alþjóðlegum rannsóknum og samstarfi. Þekkingin nýtist því bæði í íslensku atvinnulífi og á alþjóðlegum vettvangi.
Fagstjóri námsins
-
Fjarnám
Háskólinn á Bifröst er í fararbroddi í fjarnámi, sem gerir þér kleift að vera í námi á þínum forsendum í stafrænu námsumhverfi. Stafrænt fjarnám er þannig frábær valkostur fyrir fólk sem hentar að vera í sveigjanlegu háskólanámi, vegna vinnu með námi eða af einhverjum allt öðrum ástæðum. Samhliða þessu leggur skólinn einnig áherslu á búa til samfélag nemenda og í því tilliti sinna nemendur hópverkefnum og koma saman í staðalotum þar sem nemendur skapa tengsl við samnemendur sína og kennara.
-
Inntökuskilyrði meistaranáms
Inntökuskilyrði í meistaranám í viðskiptafræði er grunngráða háskólanáms (t.d. BS, BA, Bed eða BFA) sem að jafnaði hefur verið lokið með 7,25 í einkunn eða jafngildi þess, eða menntun og reynsla sem telja má sambærilega við grunngráðu í háskóla.
Forgangsröðun við inntöku nemenda ræðst af einkunnum.
Leitað er að fjölbreyttum hópi umsækjenda með mismunandi menntun og starfsreynslu. Sú dýrmæta reynsla sem nemendur öðlast af því að læra og vinna með fjölbreyttum hópi nemenda með mismunandi bakgrunn er ómetanleg. Nemendahópurinn á það sameiginlegt að vilja öðlast framúrskarandi þekkingu, þjálfun og undirbúning fyrir leiðtogastörf nútímans.
-
Skipulag námsins
Hvert námskeið í stafrænu námi er allajafna kennt í 7 vikna lotum (tvö námskeið eru kennd yfir tvær lotur) og í hverju námskeiði er ein staðlota á Hvanneyri eða í Borgarnesi. Í öllum námskeiðum liggja fyrir ákveðin þekkingar-, leikni- og hæfnimarkmið. Lögð eru fyrir verkefni jafnt og þétt sem þjálfa nemendur í að öðlast þá leikni og hæfni sem stefnt er að í hverju námskeiði fyrir sig.
Á staðlotum fer fram verkefnavinna og umræður með kennara. Gert er ráð fyrir talsverðri verkefnavinnu í hverju námskeiði og lögð er áhersla á hópa- og teymisvinnu í verkefnum. Skipulag fjarnámsins er þannig að fyrirlestrar og kennsluefni í hverju námskeiði er aðgengilegt nemendum á fjarnámsvef háskólans og nemendur geta þannig skipulagt tíma sinn eins og þeim hentar best. -
Umsóknarfrestur
Opið fyrir umsóknir á vorönn 2027
Opið er fyrir umsóknir í allar námsleiðir viðskiptadeildar, félagsvísindadeildar og lagadeildar, að undanskildum skapandi greinum í félagsvísindadeild og leiðtoganámi í hafgæslu í lagadeild.
Umsóknarfrestur er til og með 1. desember 2026.
