14. febrúar 2024

Jafnréttiskaffi í Borgartúninu

Háskólinn á Bifröst býður í kaffispjall í tilefni af Jafnréttisdögum. Daníel E. Arnarsson, framkvæmdastjóri Samtakanna '78, kemur í heimsókn og flytur hugleiðingu um stöðu jafnréttismála og mikilvægustu forgangsmál baráttunnar. Að máli sínu loknu tekur Daníel svo þátt í umræðum.

Kaffispjallið verður í starfsstöð Háskólans á Bifröst í Borgartúni 18, 3. hæð (gengið inn að aftanverðu) og hefst kl. 14:00. Daníel er væntanlegur í hús kl. 15:00. Áætlað er að viðburðinum ljúki kl. 15:30.

Hvers vegna að velja Bifröst?

  1. Í fararbroddi í fjarnámi
  2. Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
  3. Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
  4. Sterk tengsl við atvinnulífið
  5. Persónuleg þjónusta