Ísland og Norðurslóðir í nýjum heimi - ógnir og öryggi, áskoranir og tækifæri
8. maí 2025

Ísland og Norðurslóðir í nýjum heimi - ógnir og öryggi, áskoranir og tækifæri

Félagsvísindadeild Háskólans á Bifröst stendur fyrir ráðstefnu um Ísland og Norðurslóðir í nýjum heimi. Ráðstefnan verður haldin í Norræna húsinu í Reykjavík þann 15. maí næstkomandi frá klukkan 9:30 til 16:00.

Skráning á ráðstefnuna 

Dagskrá ráðstefnunnar  

Aukinn áhugi Bandaríkjanna á landsvæðum Norðurslóða eins og Kanada og Grænlandi, hefur breytt heimsmyndinni umtalsvert á skömmum tíma, ekki síst hér á Norðurslóðum. Sú breytta sýn á stöðu svæðisins í alþjóðasamfélaginu krefst endurmats á stefnumótun Norðurslóðasamfélaga í öryggis- og varnarmálum. Kemur þar margt til álita sem lýtur að lífsháttum, almannaheill, umhverfisþáttum og fleiru.

  • Hvernig bregðast Norðurslóðaríkin við í þessum aðstæðum?
  • Hver er staða okkar í þessari breyttu heimsmynd?
  • Hvaða skref er farsælast fyrir okkur að stíga?
  • Hvernig getur vísinda- og háskólasamfélagið á Norðurslóðum komið að gagni?

Meðal annars verður rætt um netógnir og umhverfishættur, öryggisskipulagningu og ákvarðanatöku, viðbúnað og hugsanlega aukna hernaðarviðveru. Fyrirlesarar koma úr ýmsum áttum og fjalla um málefnið frá ýmsum hliðum:

Fyrir hádegi eru það; 

  • Sigríður Björk Guðjónsdóttir, ríkislögreglustjóri.
    • Fyrirlestur: Borgaralegir öryggishagsmunir
  • Prof. Gregory Falco, dósent við Cornell University og stundakennari við Háskólann á Bifröst.
    • Fyrirlestur: Iceland and the Arctic in a new perspective. Threats and security, challenges.
  • Dr. Rachael Lorna Johnstone, prófessor við Lagadeild HA og þátttakandi í Arctic Initiative.
    • Fyrirlestur: Vísindasamfélagið og Norðurslóðir
  • Dr. Eiríkur Bergmann, prófessor og stjórnmálafræðingur við Háskólann á Bifröst.
    • Fyrirlestur: Norðurslóðir í nýjum veruleika: Ógn úr austri, óvissa í vestri og innri klofningur

Eftir hádegi eru það;

  • Auðunn Kristinsson, framkvæmdastjóri stefnumörkunar, áætlana og þróunar aðgerða hjá Landhelgisgæslunni.
    • Fyrirlestur: Áherslur og verkefni Landhelgisgæslunnar á sviði öryggis- og varnarmála.
  • Dr. Bjarni Már Magnússon, prófessor og deildarforseti lagadeildar við Háskólann á Bifröst.
    • Fyrirlestur: Varnartengd verkefni Landhelgisgæslunnar og aðgreiningarskylda alþjóðlegs mannúðarréttar.
  • Dr. Magnús Árni Skjöld, dósent og stjórnmálafræðingur við Háskólann á Bifröst.
    • Fyrirlestur: Hlutverk Íslands í vörnum Evrópu / Iceland’s Strategic Role within European and Transatlantic Frameworks
  • Nathan Stackhouse, MA Norðurslóðasérfræðingur og yfirmaður öryggismála hjá Bandaríska flughernum.
    • Fyrirlestur: Iceland and the Art of the Deal 

Dr. Margrét Jónsdóttir Njarðvík, rektor Háskólans á Bifröst, stýrir pallborði I - Hlutverk og möguleikar vísindasamfélags og þekkingarsköpunar í harðnandi heimsmynd.

Bogi Ágústsson, fyrrverandi fréttastjóri, stýrir pallborði II - Pólitískt umhverfi, öryggis- og varnarmál Norðurslóða.

Dr. Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, prófessor og deildarforseti Félagsvísindadeildar Háskólans á Bifröst er ráðstefnustjóri.

Þátttökugjald er 5.000 kr. Athugið að takmarkaður sætafjöldi er í boði. Viðburðurinn fer að mestu fram á íslensku og verður honum jafnframt streymt í beinni útsendingu. Boðið verður upp á hádegissnarl, drykki og léttar veitingar í lok ráðstefnudags. Við hvetjum allt áhugafólk um málefnið til þátttöku.