Endurmenntun: Þriðja æviskeiðið með augum jákvæðrar sálfræði
Endurmenntun býður upp á námskeiðið þriðja æviskeiðið með augum jákvæðrar sálfræði. Námskeiðið er haldið 13. febrúar - 27. mars, alls 7 hóptímar á Teams, á föstudögum kl. 13:00 - 15:00 á Teams.
Skráning og frekari upplýsingar
Kennari námskeiðisins er Hrefna Guðmundsdóttir vinnusálfræðingur og sérfræðingur í jákvæðri sálfræði. Hún hefur áralanga reynslu af kennslu, ráðgjöf og námskeðahaldi fyrir fullorðna og vinnur sérstaklega með styrkleika, seiglu, merkingu og sjálfsmynd á mismunandi æviskeiðum.
Við tókum Hrefnu tali og spurðum hana nokkurra spurninga um námskeiðið:
Fyrir hverja er námskeiðið?
Námskeiðið er ætlað fólki 55 ára og eldra sem vilja staldra við og fræðst og skoða líf sitt með augum jákvæðrar sálfræði af forvitni. Námskeiðið hentar þeim sem vilja skoða áskoranir og tækifæri á þessu aldurskeiðið. Kannski er þetta tími breyttra hlutverka, aðrar áherslur eða aðstæður eða manni langar hreinilega að auka sjálfsþekkingu á eigin hamingju í samhljómi við eigin þarfir og langanir og skoða möguleika og tækifæri.
Engin sérstök reynsla nauðsynleg, bara vilji til að taka þátt, ígrunda og prófa.
Hvað lærir maður á þessu námskeiði?
- taka betur eftir því sem gengur vel og byggja ofan á það
- skilja betur eigin styrkleika og hvernig hægt er að nýta þá með nýjum hætti
- verkfæri sem efla seiglu, sjálfsumhyggju og raunsæja bjartsýni
- auka þekkingu á eigin hamingju
- dýpka tengsl við sjálfa/n þig og aðra
- ígrunda tilgang, sátt og merkingu
- ígrunda hindranir enn fyrst og fremst tækifæri upp úr miðjum aldri
- Við styðjumst við námsefni héðan og þaðan t.d. úr fræðum Martin Seligman, Barbara Friedricsen, Carol Dweck, Ed Diener og Robert Biswas Diener, Ruut Veenhoven ofl.
Af hverju ákvaðst þú að kenna þetta námskeið?
Námsefnið þekki ég vel og hef kennt s.l. ár, nú langar mig að skoða fræðin sérstaklega með þessum aldurshópi. Ég hef í gegnum störf mín séð hversu mikill kraftur og möguleikar felast í þriðja æviskeiðinu og langar að skapa rými til að staldra við og skilja betur tækifærin og möguleikana með augum jákvæðrar sálfræði með öðrum.
Mig langaði að skapa námskeið sem:
- byggir á vísindum en talar mannamál
- viðurkennir bæði áskoranir og tækifæri sem fylgja aldrinum
- hjálpar fólki að sjá sjálft sig í nýju ljósi, með virðingu fyrir lífsreynslu
Innblásturinn kemur meðal annars frá námskeiðinu The Science of Well-Being við Yale Háskólann, sem er vinsælasti áfangi skólans frá upphafi, en efnið er aðlagað að íslenskum aðstæðum og þessum lífskafla sérstaklega.
Svo hef ég skrifað þessar tvær bækur sem ég mun auðvitað einnig styðjast við; Why are Icelanders so Happy? (2016) og; From Reykjavik to Penang; Stories of Love and Happiness (2025).
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta