Alþjóðleg ráðstefna - Nýjar áskoranir í öryggismálum: Norðurslóðir og ytri mörk Evrópu
Á miðvikudaginn í næstu viku, þann 13. maí, stendur Háskólinn á Bifröst fyrir alþjóðlegu ráðstefnunni Nýjar áskoranir í öryggismálum: Norðurslóðir og ytri mörk Evrópu - Svæðisbundnar áskoranir, hernaðarleg viðbrögð og nýtt hlutverk Evrópu í breyttri heimsmynd.
Viðburðurinn fer fram í Norræna húsinu og stendur yfir allan daginn (húsið opnar kl. 9:00). Ráðstefnan hefst kl. 9:30 og formlegri dagskrá lýkur kl. 16:00. Á dagskránni eru bæði fjölbreyttir fyrirlestrar og pallborðsumræður. Upplýsingar um fyrirlesarana og erindi þeirra má finna á vef ráðstefnunnar
Ráðstefnan er haldin undir merkjum Jean Monnet Chair verkefnisins Iceland’s Strategic Role in Arctic and European Security (ISARCEUR) við Háskólann á Bifröst, í samstarfi við sendiráð Póllands, Frakklands, Bandaríkjanna og Evrópusambandsins á Íslandi.
Frítt er inn á viðburðinn, sem fer að mestu fram á ensku. Skráning hefur farið vel af stað og aðeins eru örfá sæti laus. Einnig verður hægt að fylgjast með í beinu streymi.
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta