10. ágúst 2026
Nýnemadagur Háskólagáttar 2026
Nýnemadagur Háskólagáttar Háskólans á Bifröst verður haldinn 10. ágúst í húsnæði Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri og hefst athöfnin kl. 12:30. Á nýnemadeginum eru nýir nemendur boðnir velkomnir í Háskólann á Bifröst og þeim veitt innsýn í námsfyrirkomulagið hjá Háskólagátt. Helstu stoðdeildir kynna þar nemendum sína þjónustu, eins og náms- og starfsráðgjafar, sérfræðingar kennslukerfa, prófstjórar, tölvudeildin og fleiri.
Nýnemadagurinn er tilvalinn til að hitta samnemendur, kennara og annað starfsfólk og reynslan sýnir að þátttaka á nýnemadögum hjálpar nýnemum að komast hraðar inn í námið og fyrirkomulag þess.
Dagskrá:
12:30 Skólasetning – Dr. Ólína Kjerúlf Þorðvarðardóttir, rektor
12:40 Þjónusta við nemendur og verklag í námi og kennslu - Álfheiður Eva Óladóttir, umsjónarkona Háskólagáttar
12:50 Upplýsingar til nemenda, kerfin og annað hagnýtt - Upplýsingatæknisvið
13:05 Kynning á bókasafni og leitir.is – Rósa S. Jónsdóttir
13:15 Náms- og starfsráðgjöf – Að hverju þarf að huga í fjarnámi - Unnur Símonardóttir
13:30 Kaffihlé
13:45 Kynning á náminu og persónuleg reynsla - Embla Kristínardóttir, verkefnastjóri Háskólagáttar
14:00 Kennsla í Leiðin mín í lífinu – Unnur Símonardóttir
15:00 Kaffihlé
15:15 Kennsla í upplýsingatækni hefst – Bjarni Heiðar Halldórsson
17:00 Nemendafélag Háskólans á Bifröst kynnir starfsemi félagsins
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta