Viltu starfa í tónlistargeiranum? Nýtt örnám í tónlistarviðskiptum
2. desember 2025

Viltu starfa í tónlistargeiranum? Nýtt örnám í tónlistarviðskiptum

Háskólinn á Bifröst og Listaháskóli Íslands bjóða nú upp á nýtt 12 ECTS örnám í tónlistarviðskiptum í fjarnámi. Kennsla fer fram á ensku, námið er fjarnám og er sveigjanlegt nám bæði fyrir þá sem vilja hefja háskólanám og þá sem starfa nú þegar í tónlistargeiranum og vilja ná sér í aukna þekkingu á sviði tónlistarviðskipta. 

Námskeiðið sameinar fræðilega innsýn og hagnýta þekkingu. Þátttakendur fá aðgang að þekkingu og alþjóðlegu tengslaneti sem hjálpar þeim að aðlagast og vaxa í ört breytilegum heimi. Í náminu byggja nemendur upp góða verkfærakistu sem nýtist þeim í áframhaldandi námi og starfi.  

Kennslan nær til þeirra þátta sem taka við þegar sköpunarferlinu lýkur; dreifingu,  markaðssetningu, útgáfustjórnun, menningarstefnu, fjármögnunar, áhorfendaþróun og stafrænnar stefnumótunar.  

Námið veitir góða innsýn fyrir listamenn sem vilja gefa út sjálfir og líka fyrir þá sem vilja vinna með listamönnum, stýra verkefnum, leiða markaðs- eða útgáfustarf, eða skilja betur viðskipta- og rekstrarhlið tónlistar. 

Umsóknarfrestur er til 5. janúar 2026. Kennsla hefst svo 6. janúar 2026 og er örnámið kennt í þremur námskeiðum á vorönn 2026. 

Verð: Verð: 150.000 ISK (u.þ.b. €1.020 / £880 / US$1.180

Skráning og frekari upplýsingar:  https://www.bifrost.is/namid/endurmenntun/music-business 

Eða hafðu samband við endurmenntun Háskólans á Bifröst, netfangið:  endurmenntun@bifrost.is 

Hér er hlekkur á kynningarmyndband fyrir örnámið þar sem kennarar námslínunnar segja okkur allt um námið og hvað það snýst um

https://youtu.be/fFyvPdWzKmw?si=O5xdjM4i3ivcHAQo