Vesturland í nýrri evrópskri bók um menningarstarf utan stórborga
26. ágúst 2026

Vesturland í nýrri evrópskri bók um menningarstarf utan stórborga

Út er komin ný evrópsk bók sem er afrakstur rannsóknarverkefnisins IN SITU. Rannsóknin snýst um menningu og skapandi greinar utan stórborga og var Vesturland eitt af sex tilraunasvæðum sem skoðuð voru í fjögurra ára rannsókn sem styrkt var af Horizon Europe.

Anna Hildur Hildibrandsdóttir og Erna Guðrún Kaaber eiga saman kafla um Vesturland í bókinni Situating Culture: Exploring Culture and Creativity Beyond the City. Ritstjórar bókarinnar eru Nancy Duxbury, Patrick Collins og Mark Justin Rainey og hún er gefin út af Centre for Social Studies, CES, við Coimbra háskóla í Portúgal.

Í kaflanum, „West Iceland: A symphony of stories and landscapes“, skoða Anna Hildur og Erna hvernig sögur, landslag, menningararfur og sköpun fléttast saman á Vesturlandi og hvernig þessi tengsl birtast í menningarstarfi, frumkvöðlastarfi og staðarþróun. Þær hafa leitt verkefnið á Íslandi fyrir hönd Háskólans á Bifröst. Anna Hildur var verkefnastjóri IN SITU á Íslandi og Erna leiddi rannsóknina á Vesturlandi.

Tilraunasvæðin sex sem fjallað er um eru Vesturland á Íslandi, Galway hérað á Írlandi, Asoreyjar í Portúgal, Rauma og Eurajoki í Finnlandi, Valmiera hérað í Lettlandi og Šibenik Knin hérað í Króatíu. Í verkefninu var meðal annars beitt þátttökumiðaðri menningarkortlagningu til að draga fram staðbundna þekkingu, reynslu íbúa og tengsl menningar, sköpunar og nýsköpunar.

Hér má finna netútgáfu af bókinni