Verkefnastjóri á kennslusviði óskast 13. janúar 2016

Verkefnastjóri á kennslusviði óskast

Starfssvið

  •    Umsjón með nemendaskrá skólans og umsóknum um skólavist
  •    Samskipti við nemendur og starfsfólk skólans
  •    Úrvinnsla og birting tölfræðigagna
  •    Ráðgjöf varðandi nám og námsleiðir við Háskólann á Bifröst

Hæfni og menntunarkröfur

  •    Háskólapróf
  •    Góð íslensku- og enskukunnátta
  •    Góð tölvukunnátta og færni í úrvinnslu tölfræðigagna
  •    Frumkvæði og hæfni til að vinna sjálfstætt
  •    Hæfni í mannlegum samskiptum

Um er að ræða fullt starf á Bifröst og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi. Karlar jafntsem konur eru hvött til að sækja um starfið.

Umsóknarfrestur er til og með 24. janúar nk. Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilsskrá og kynningarbréf. Jafnframt skal leggja fram staðfestar upplýsingar um menntun. Umsóknir og fyrirspurnir um starfið skal senda á netfangið kennslustjori@bifrost.is

 

Hvers vegna að velja Bifröst?

  1. Í fararbroddi í fjarnámi
  2. Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
  3. Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
  4. Sterk tengsl við atvinnulífið
  5. Persónuleg þjónusta