Velkomin til starfa
20. ágúst 2026

Velkomin til starfa

Þorgeir Pálsson hefur verið ráðinn í stöðu mannauðsstjóra hjá Háskólanum á Bifröst og mun hann einnig gegna starfi sérfræðings á stjórnsýslusviði.

Þorgeir Pálsson er fæddur á Hólmavík og er ættaður af Ströndum í föðurætt og Tálknafirði í móðurætt.  Hann ólst þó upp í Hveragerði og á Höfuðborgarsvæðinu. Þorgeir er giftur Hrafnhildi Skúladóttur sem ættuð er frá Þingeyri og samtals eiga þau fjögur börn, 33 ára, 20 ára, 13 ára og 9 ára. Þau búa á Hólmavík, nema elstu tvö eru fyrir sunnan.  Helstu áhugamál Þorgeirs eru; gamall trébátur sem hann er að gera upp, matreiðsla, Jazz og Blues tónlist.  Fjölskyldan stundar kajak róðra og er mikið fyrir tjaldútilegur. Þorgeir er líka virkur í félagslífi barna sinna, t.d. í Skíðafélagi Strandamanna og íþróttafélaginu Geislanum í Strandabyggð.  

Þorgeir hefur unnið lengi sem stjórnunarráðgjafi og verkefnastjóri í alþjóðlegum verkefnum, enda hefur hann mikinn áhuga á alþjóðamálum og ólíkri menningu og hefur notið þeirrar gæfu að ferðast og vinna í um 50 löndum. 

Hann hefur kennt við háskóla á Íslandi í um 30 ár og þá aðallega kennt alþjóðaviðskipti en einnig verkefnastjórnun, markaðsfræði og stjórnun.  Eins hefur hann kennt við Comenius háskólann í Bratislava í Slóvakíu og við Sjávarútvegsháskóla Sameinuðu þjóðanna á Íslandi"

Við bjóðum Þorgeir velkominn til starfa.“