Pallborðsumræður: Dr. Magnús Árni Skjöld Magnússon, Axel Hagelstam, dr. Veronica Anghel, Jan Lundin og Jóhann B. Skúlason.

Pallborðsumræður: Dr. Magnús Árni Skjöld Magnússon, Axel Hagelstam, dr. Veronica Anghel, Jan Lundin og Jóhann B. Skúlason.

18. september 2026

Vel sótt málstofa um Ísland og Norrænar allsherjarvarnir

Húsfyllir var á málstofuna Allherjarvarnir: Gæti norræna módelið hentað Íslandi?  sem Háskólinn á Bifröst stóð fyrir í Norræna húsinu í gær. Málstofan var einnig í beinu streymi þar sem margir fylgdust með. Þar var varpað fram spurningunni um það hvort og þá hvernig Ísland gæti nýtt reynslu Finna og Svía af allsherjarvörnum til að efla viðbúnað og viðnámsþrótt samfélagsins.

Svíþjóð og Finnland hafa um árabil byggt upp öflug kerfi til að tryggja öryggi og virkni samfélagsins þegar áföll eða krísur dynja yfir. Í Svíþjóð er hugmyndin um allsherjarvarnir (Total Defence) lykilþáttur í þessari nálgun, þar sem varnir landsins eru ekki eingöngu verkefni hersins heldur byggjast á samspili stjórnvalda, borgaralegra stofnana, atvinnulífs og samfélagsins alls. Í Finnlandi gegnir sambærileg nálgun, meðal annars undir merkjum heildstæðs öryggis (Comprehensive Security), mikilvægu hlutverki.

Slík nálgun snýst ekki aðeins um hefðbundnar hernaðarógnir. Hún nær einnig til þess hvernig samfélög verja mikilvæga innviði, fjarskipti, orku- og upplýsingakerfi, tryggja aðfangakeðjur og byggja upp viðnámsþrótt gagnvart fjölbreyttum áföllum og ógnum. Var sjónum beint að reynslu Norðurlandanna og hvort sú reynsla gæti nýst Íslandi.

Þátttakendur í málstofunni voru dr. Veronica Anghel, stjórnmálafræðingur við European University Institute, Axel Hagelstam, forstöðumaður alþjóðamála og greiningar hjá Viðbúnaðarstofnun Finnlands, Jan Lundin, sendiherra Svíþjóðar á Íslandi og Jóhann B. Skúlason, aðstoðaryfirlögregluþjónn á Almannavarnasviði ríkislögreglustjóra.

Magnús Árni Skjöld var fundarstjóri og stýrði hann einnig pallborði eftir að erindum lauk.

Málstofan var hluti af Jean Monnet Chair verkefninu Iceland’s Strategic Role in Arctic and European Security (ISARCEUR) við Háskólann á Bifröst, sem dr. Magnús Skjöld leiðir. Var hún haldin í samstarfi við sendiráð Svíþjóðar og Finnlands á Íslandi.

Hér má horfa á málstofuna í heild sinni. 

Myndasafn