Varði doktorsritgerð í viðskiptafræði
13. mars 2026

Varði doktorsritgerð í viðskiptafræði

Hanna Kristín Skaftadóttir, lektor við viðskiptadeild Háskólans á Bifröst, varði þann 12. mars síðastliðinn doktorsritgerð sína í viðskiptafræði við Háskóla Íslands. Í rannsókn sinni varpar Hanna Kristín ljósi á hvernig fyrirtæki geta innleitt gervigreind og sjálfvirkni á ábyrgan og skilvirkan hátt.

Ritgerðin, sem ber heitið „Gervigreind og sjálfvirknivæðing ferla í viðskiptum. Stjórnun sjálfvirknivæddra umbreytinga: Innleiðing gervigreindar, stjórnkerfisbreytingar og greining á gagnadrifnum aðferðum“, er þverfagleg og tekur á stórum áskorunum samtímans.

Stjórnun og menning lykilatriði

Rannsóknin er þverfagleg og tekur á þremur meginþáttum: siðferðilegu regluverki Evrópusambandsins, áhrifum leiðtogastíla á viðhorf starfsfólks og tæknilegum aðferðum til að gera flókin gervigreindarlíkön skiljanlegri fyrir notendur. Helstu niðurstöður benda til þess að tæknin ein og sér dugi skammt ef stjórnun og menning fylgja ekki með. Hvetjandi forysta og skýr samskipti eru lykilatriði til að draga úr ótta starfsfólks og auka traust á sjálfvirkum kerfum.

Mikill fengur fyrir Bifröst 

Hanna Kristín hefur samhliða náminu starfað sem lektor og fagstjóri viðskiptagreindar við Háskólann á Bifröst. Hún býr yfir víðtækri reynslu úr atvinnulífinu, m.a. sem ráðgjafi og framkvæmdastjóri, auk þess sem hún situr í tækninefnd um stöðlun gervigreindar á Íslandi (EU AI Standardization JTC21). 

Háskólinn á Bifröst óskar Hönnu Kristínu innilega til hamingju með glæsilegan áfanga!