Útskrift úr örnámi
Nemendur úr fjórum námsleiðum útskrifuðust í gær og ljúka þar með fyrsta skrefi á nýjum faglegum vettvangi.
Nemendur útskrifuðst úr þremur örnámslínum: Gæðastjórnun, Tónlistarviðskiptum, Innra eftirliti – innri endurskoðun og regluvarsla. Auk þess útskrifuðust nemendur úr námsleiðinni Stafræn fatahönnun. Háskólinn óskum öllum nemendum innilega til hamingju með áfangann.
Hvað er örnám?
Örnám (e. microcredentials) eru stuttar námslínur á háskólastigi. Sérstaða örnáms er að námið er metið á grunni ECTS eininga og lýtur því öllum þeim gæðakröfum sem gerðar eru til náms á háskólastigi hvað færni og þekkingu varðar. Örnámið við Háskólann á Bifröst er kennt í fjarnámi og hentar því afar vel meðfram vinnu og öðru námi. Örnám má meta til styttingar grunn- eða meistaranáms eða til inntöku í nám á meistarastigi.
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta