Úr skapandi greinum í framleiðslustjórnun
Helena Hafsteinsdóttir er á lokaári sínum í BA-námi í skapandi greinum við Háskólann á Bifröst. Hún vakti nýverið athygli sem einn af stofnmeðlimum og framleiðslustjóri Leikhúss ókunnuga fólksins sem frumsýndi söngleikinn Kabarett í síðustu viku í Þjóðleikhúskjallaranum. Leikhúsið var sett á laggirnar vorið 2025 og er ætlað að framleiða vandaðar sviðslistir og skapa ný og spennandi tækifæri fyrir metnaðarfullt listafólk, með sérstakri áherslu á söngleikjaformið.
Fréttavefur Háskólans á Bifröst tók Helenu tali um tilurð leikhópsins og framtíðaráætlanir.
- Segðu okkur frá tilurð Leikhúss ókunnuga fólksins?
Bjartur Örn Bachmann, leikstjóri söngleiksins var með hugmyndina um að setja upp söngleikinn Kabarett í kollinum. Þegar hann ræddi við mig var hann þegar í sambandi við Þjóðleikhúsið, enda búinn að aðstoðarleikstýra Stormi á þeim tíma. Við vorum saman í tökum í kvikmyndaverkefni sem ég var að framleiða og hann hugsaði sér gott til glóðarinnar að fá mig í leikhúsframleiðslu. Hann hafði þá fengið til liðs við sig frábært teymi fólks: Arndísi Maríu Ólafsdóttur, Júlíu Kolbrúnu Sigurðardóttur, Níels Thibaud Girerd og Katrínu Önnu Karlsdóttur.
Saman stofnuðum við leikhópinn og þótt að við Bjartur eigum fyrirtækið saman, þá er þetta ástríðudrifið hópefli okkar allra sem er drifið áfram af metnaði og ástríðu.
- Viltu lýsa fyrir okkur hlutverki framleiðslustjóra innan hópsins og hvað felst í því í svona verkefni?
Framleiðslustjóri sér um að ráða fólk í verkefnið, annast samskipti leikhópsins við viðeigandi deildir í Þjóðleikhúsinu, allt skipulag og almenna ábyrgð á allri praktík. Við getum kannski lýst því þannig að Bjartur, leikstjóri, beri listræna ábyrgð á verkinu en ég beri ábyrgð á öllu því sem viðvíkur framleiðsluferlinu þannig að allt gangi upp á bak við tjöldin.
- Hvaða þættir úr náminu í skapandi greinum hafa reynst þér mikilvægastir í þessu verkefni?
Það er afar dýrmætt að hafa lært framleiðslu listrænna verkefna. Styrkumsóknir geta t.d. verið mjög stór og yfirþyrmandi verkefni sem erfitt er að byrja á og því er gott að hafa byggt upp þekkingargrundvöll þar.
Það var ekki síður mikilvægt að læra um ólík persónueinkenni og styrkleika fólks í teymisvinnu, hvernig best sé að dreifa ábyrgð og hvetja fólk til verka á þann máta sem hentar hverjum og einum. Það hefur virkilega nýst mér í þessari vinnu.
Ég hef líka þróað með mér meira sjálfstraust sem framleiðandi og að treysta betur á eigin þekkingu. Ég hef unnið við framleiðslu á kvikmyndaverkefnum fram til þessa og þrátt fyrir að hafa tekið að mér ýmis flókin verkefni var ég mjög hrædd við að stíga inn á nýjan vettvang innan leikhússins. En það er gott að finna að maður getur tekið reynslu og þekkingu með sér í ólík framleiðsluverkefni innan geirans.
En það sem er kannski allra dýrmætast er hversu mikil áhersla er lögð á tengslamyndun og hópstarf í náminu og þarna eignaðist ég tvær af mínum bestu vinkonum.
- Hvernig upplifðirðu frumsýninguna og hvað er nú framundan?
Frumsýningin var alveg meiriháttar og við vorum öll í skýjunum. Sýningin er á dagskrá Þjóðleikhússins út júní og áfram inn á næsta leikár og ég vona að hún verði langlíf, enda kom alveg einstaklega glæsilegur hópur listafólks að uppsetningunni.
Ástríðan, dugnaðurinn, gleðin og væntumþykjan í garð hvers annars sést vel í verkinu. Það skín af andlitum leikara sýningarinnar hvað þeim þykir þetta gaman og hvað þau hafa lagt mikið upp úr því að tengjast sem hópur.
- Hvernig sérðu fyrir þér að Leikhús ókunnuga fólksins þróist á næstu árum?
Félagið mun halda ótrautt áfram að vinna að framúrskarandi söngleikjauppsetningum með nýstárlegum og djörfum hætti. Hópurinn er uppfullur af metnaðarfullu og hæfileikaríku listafólki sem getur tekist á við fjölbreyttar áskoranir.
Okkur langar að skipta á milli okkar verkum og prófa okkur áfram í ólíkum hlutverkum. Um leið ætlum við að nýta leikfélagið sem vettvang til þess að læra hvort af hvoru öðru, skemmta okkur og vinna með frábæru fólki. Við ætlum að ögra okkur og þroskast sem listamenn og framleiðendur í sviðslistum.
Við þökkum Helenu kærlega fyrir viðtalið og óskum henni hjartanlega til hamingju með frumsýninguna og með Leikhúss ókunnuga fólksins.
Frekari upplýsingar um Leikhús ókunnuga fólksins
Hér má lesa sér frekar til um sýninguna á vef Þjóðleikhússins
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta