Umsjón nemendaskrár- og kennslukerfis, laust starf frá 1. ágúst
Umsjón kennslukerfis
Við auglýsum eftir lausnamiðuðum einstaklingi sem hefur mikla og góða þjónustulund og er jafnframt menntaður eða með reynslu á sviði upplýsingatækni. Um er að ræða tímabundna ráðningu í starf á kennslusviði skólans, til eins árs í fullt starf frá og með 1. ágúst nk.
Helstu verkefni og ábyrgð
Ábyrgð og dagleg umsjón nemendaskrár og kennslukerfis. Aðstoð og ráðgjöf vegna notkunar og vinnu í rafrænu kennsluumhverfi skólans við kennara, nemendur og starfsfólk. Tæknileg aðstoð vegna próftöku nemenda. Umsjón með kennsluumhverfi í kennslurýmum skólans. Kennsla og þjálfun kennara og nemenda á kennslukerfi.
Hæfni og menntunarkröfur
Stúdentspróf að lágmarki
BS í tölvunarfræði er æskileg eða sambærileg menntun eða þekking á sviði upplýsingatækni
Starfsreynsla úr háskólaumhverfi er kostur
Góð færni í mannlegum samskiptum og þolinmæði
Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði.
Með umsókn þarf að fylgja afrit prófskírteina.
Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um starfið. Búseta á Bifröst eða í Borgarfirði er æskileg.
Umsóknarfrestur er til og með 22. maí nk. Umsóknir og fyrirspurnir um starfið skal senda á netfangið kennslustjori@bifrost.is.
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta