13. nóvember 2026

Truflanir á Microsoft 365-þjónustu

Vegna tæknilegra örðugleika hjá Microsoft eru truflanir á Microsoft 365-þjónustu sem nemendur og starfsfólk Háskólans á Bifröst nýta.

Truflanirnar hafa einkum áhrif á Outlook-tölvupóstþjónustuna, en einnig kann að verða vart við truflanir í öðrum þjónustum Microsoft.

Unnið er að lausn vandans hjá Microsoft, en ekki liggur fyrir hvenær þjónustan verður komin í eðlilegt horf.

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.