Truflanir á framkvæmd prófa vegna tæknilegra vandamála hjá Inspera
Tæknileg vandamál hjá prófakerfinu Inspera hafa haft áhrif á framkvæmd námsmats í lotu 1 undanfarna daga. Vandinn tengist auðkenningarlausninni Inspera Integrity og hefur valdið því að sumir nemendur hafa átt í erfiðleikum með að skrá sig inn í prófakerfið.
Aðfararnótt 8. október framkvæmdi Inspera uppfærslu sem ætlað var að leysa vandamálið. Við prófanir í morgun kom hins vegar í ljós að uppfærslan hafði ekki skilað tilætluðum árangri og að umfang vandans varð meira. Af þeim sökum var ákveðið með stuttum fyrirvara að fresta fyrirhuguðum prófum á meðan unnið er að lausn í samráði við þjónustuaðila kerfisins.
Í kjölfarið var neyðaráætlun prófstjórnar virkjuð og unnið samkvæmt þeim verkferlum sem gilda þegar ófyrirséðar aðstæður hafa áhrif á framkvæmd prófa.
Háskólinn gerir sér grein fyrir þeim áhrifum sem þessi staða hefur á nemendur, ekki síst þá sem eru í fullu starfi með námi og með fjölskyldur. Unnið er að því að finna lausnir sem lágmarka rask og tryggja að námsmat fari fram með eðlilegum hætti.
Nemendur fá nánari upplýsingar um fyrirkomulag prófa í sínum námskeiðum með tölvupósti síðar í dag.
Háskólinn harmar þau óþægindi sem þessi staða hefur valdið og þakkar nemendum fyrir sýndan skilning og þolinmæði.
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta