Þjónustustjórar AÞ-Þrifa útskrifast úr þjónustustjóraskólanum
Við erum stolt af því að tilkynna að þjónustustjórar AÞ Þrif hafa lokið Þjónustustjóraskólanum frá Endurmenntun Háskólans á Bifröst. Námið, sem er sérhannað með þarfir millistjórnenda hjá ræstingarfyrirtækjum í huga, hefur staðið yfir í heilan vetur og leitt til mikilvægrar faglegrar þróunar starfsfólks.
Í gegnum námið hafa nemendur fengið fræðslu á fjölbreyttu sviði. Má þá nefna námskeið á sviði verkefnastjórnunar, ráðninga og starfsþróunar, þjónustu við viðskiptavini og skilning á fjölbreyttri vinnustaðamenningu. Þeir hafa einnig fengið þjálfun í að takast á við erfið samtöl af fagmennsku og öryggi, kynnst réttindum og skyldum launþega og eflt færni sína í upplýsingatækni.
Þjónustustjóraskólinn er hluti af fyrirtækjaþjónustu Endurmenntunar Háskólans á Bifröst og er hannaður til að mæta raunverulegri fræðsluþörf fyrirtækja í þjónustugeiranum.
AÞ Þrif hefur lagt áherslu á þjálfun og þróun starfsfólks síns og endurspeglast það í þátttöku stjórnenda í skipulögðu námi af þessum toga. Útskrift þjónustustjóranna er viðurkenning á þeirri vinnu sem lögð hefur verið í nám og starfsþróun en nýverið var AÞ-Þrif eitt þriggja fyrirtækja sem tilnefnd voru til Menntaverðlauna atvinnulífsins sem Menntafyrirtæki ársins.
Við óskum öllum útskriftarnemendum til hamingju og hlökkum til áframhaldandi samstarfs.
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta